16.03.1936
Neðri deild: 25. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (1831)
32. mál, landssmiðja
*Emil Jónsson:
Það er alveg rétt, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, að það er óþarfi að hafa um þetta langt mál, þar eð rætt var nokkuð um þetta við 2. umr. Hann boðaði þá brtt. í svipaða átt og þessa. Var þó náttúrlega ekki hægt að taka atstöðu til hennar þá. vegna þess að ekki var vitað, hvernig hún yrði orðuð. Þó að ég sé þessu meðmæltur í principinu, þá finnst mér þessi till. ganga of langt, þar sem engin undantekning er gerð. Mér finnst, að ekki geti komið til mála, eins og brtt. gerir ráð fyrir, að það verði að bjóða út hvert einasta smáatriði. Hitt er annað mál, að sjálfsagt er, ef um stærri verk er að ræða, að þau séu boðin út. Enda kemur þetta alveg í bága við gildandi venjur. Ég tók það fram við 2. umr., að ég teldi það sæmilega tryggt í frv. sjálfu, að ekki yrði tekið verri tilboðum frá landssmiðjunni heldur en öðrum, þar sem segir, að ríkisstj. skuli dæma um, hvort hagkvæmara sé að láta vinna verkið í landssmiðjunni eða annarsstaðar, en um það getur hún ekki dæmt, nema hún grennslist eftir, hvað aðrir bjóða. Ég þarf svo ekki að fara fleiri orðum um þetta, en treysti mér ekki að fylgja till. eins og hún er orðuð.