03.04.1936
Efri deild: 41. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1309 í B-deild Alþingistíðinda. (1858)
32. mál, landssmiðja
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Hv. 10. landsk. spurðist fyrir um það, hvort landssmiðjan hefði nokkurntíma greitt vexti af því fé, sem ríkissjóður hefði lánað henni. Ég get svarað hv. 10. landsk. því, að landssmiðjan hefir greitt vexti frá byrjun af því fé sem ríkissjóður hefir lánað henni. Ég skal ekki fullyrða, hvort það hefir fallið niður eitt ár, og þá sennilega 1932, en þá hafa þeir vextir verið greiddir næsta ár á eftir. Ég held það hafi ekki verið fleira, sem ástæða var til að gefa upplýsingar um út af ræðu hv. 10. landsk. En í sambandi við þetta frv. verð ég að segja það, að mér er alveg óskiljanlegt, hvers vegna svo mikið kapp er lagt á að reyna að hindra framgang þess, máls. Landssmiðjan er nú til. Og ég hefi ekki heyrt neinar raddir um það, að ástæða væri til að leggja hana niður. Hinsvegar starfar þetta fyrirtæki nú ekki eftir neinum settum reglum, en það ætti tvímælalaust að vera vinningur. Og það ættu menn að sjá, hverrar skoðunar sem menn annars eru í pólitík. Mér finnst þetta svo eðlilegt og sjálfsagt, að ríkissjóður hafi sína eigin smiðju til þess að vinna fyrir þær stofnanir og fyrirtæki, sem hann hefir með höndum, og einmitt mikið af því smíði, sem einungis slík smiðja getur af hendi leyst. Og með þessu má jafna vinnu þeirra, sem hafa atvinnu hjá ríkissjóði, en aðeins stopula, því að sumu leyti fer ekki saman aðalvinnutími smiðjunnar og ýmis önnur starfsemi, sem ríkissjóður hefir með höndum, enda er samkv. þessu frv. ætlazt til, að meginstarf smiðjunnar verði að vinna fyrir ríkisfyrirtæki beint og óbeint, þau sem ríkið á eða njóta styrks af opinberu fé. Hitt er ljóst, að örðugt yrði að haga starfseminni þannig, að sem minnstar sveiflur yrðu um mannahald, ef bannað væri smiðjunni að taka að sér önnur verk; því er gert ráð fyrir, að hún taki af einstaklingum og félögum þau verk, sem hún getur unnið og býðst til að vinna fyrir ekki lakari kjör en annarsstaðar eru fáanleg, og segir sig sjálft, að því aðeins koma þessi verk til smiðjunnar, að kjörin séu ekki lakari en annarsstaðar. Fæ ég ekki séð, að neinn geti haft á móti því.
Í þessu frv. er einmitt ætlazt til, að landssmiðjan greiði tekjuskatt til ríkis og bæjarsjóði hliðstætt gjald við það, sem önnur ríkisfyrirtæki greiða. Ég skal játa, að með þessu frv. er gert ráð fyrir, að nokkurt fé sé lagt til smiðjunnar, en ekki er bundið, hvernig það skuli gert. Það fer eftir ýmsum aðstæðum. En það segir sig sjálft, úr því að ríkissjóður á fyrirtækið og rekur það, að það verður að vera svo úr garði gert, að það sé á allan hátt samkeppnisfært við önnur fyrirtæki hliðstæð. Það væri heimska að ætla ríkinu að smíða í sinni eigin smiðju og gera hana þannig úr garði, að verkið verði verr af hendi leyst og dýrara en annarsstaðar.
Í þessu sambandi vil ég drepa á það, að smiðjan hugsi sér að taka upp mótorasmíði. Um þetta hefir engu verið slegið föstu, og er eftir að rannsaka þetta mál mikið. En ég vil ekki segja fyrirfram, að slíkt sé útilokað. Ég get hugsað mér, að samningar næðust milli landssmiðjunnar og járnsmiðja erlendis um það, að sumt af smíði mótora geti orðið leyst af hendi hér heima. Aðalagnúinn er sá, eins og hv. andmælendur segja, að hér eru notaðar margar tegundir mótora og mismunandi stórar. En það er ekki sagt, að það sé heppilegt að nota önnur eins kynstur mismunandi mótora eins og nú er gert. Hygg ég, að flestum þætti fengur að, ef hægt væri að fækka þeim og ganga úr skugga um, hverjir væru heppilegastir. Hinsvegar verður ekki hjá því komizt, að þeir séu mismundi stórir eftir stærð skipanna. En að sumu leyti kostar það ekki — eftir því, sem ég heyri sagt, — ákaflega mikla breyt. á smiðjunni, vegna þess að sumir mótorar er mér sagt að séu þannig samsettir –ég er hér að tala um það, sem ég hefi ekki vel vit á sjálfur —, að það megi auka við þá hestöflum, tvöföldum, ferföldum o. s. frv. En þetta mál er yfirleitt á undirbúnings- og rannsóknarstigi, og ég fullyrði ekki neitt, en tel ekki rétt að fordæma þessa hugmynd nú þegar.
Um rekstraráðið hygg ég, að það sé skipað þeim mönnum, sem eru fullkomlega starfi sínu vaxnir. Um Halldór Steinsson veit ég ekki betur en hann hafi um langan aldur átt sæti á þingi og hafi fengið orð á sig fyrir að vera gætinn og glöggur í öllu, er að fjármálum lýtur. Það var talað um, að einn væri bílstjóri. Ég sé ekki, að hann sé óhæfari í þessu starfi, þó að hann þekki vel mótora þá, sem notaðir eru í bíla o. s. frv. Einn er fyrrv. verzlunarmaður. núv. blaðamaður, sagði hv. þm. Ég álít það mjög heppilegt, að maður, sem hefir verzlunarþekkingu, sé með. Þá var sagt, að enginn væri sérfræðingur í byggingu véla og járnsmíði, en í smiðjunni sjálfri er þó slíkri sérfræði til að dreifa alveg nægilega.
Ég held það séu ekki fleiri atriði, sem ástæða er til að taka fram. Ég hefi upplýst það, sem hv. þm. spurði um. Ég vænti, að hv. deild fallist á að setja l. um þetta efni og afgr. þau sem allra fyrst.