20.04.1936
Efri deild: 52. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1340 í B-deild Alþingistíðinda. (1873)

32. mál, landssmiðja

*Þorsteinn Briem:

Það verður ekki auðvelt að vara á 5 mín. öllu því, sem að mér var beint.

Hv. 4. þm. Reykv. gat þess, að ég virti skoðun hans. Ég virði allar skoðanir, sem ekki eru keyptar. Og ég vænti þess, að hann hafi ekki látið kaupa sína skoðun.

Að því er vélakaupin snertir, minnti ég á það, að hæstv. fjmrh. hafði hvatt til þess í útvarpinu, að menn spöruðu þau sem mest við sig. Hv. þm. sagði nú í því sambandi, að það væri viðurkennt af ríkisstj. og gjaldeyrisn., að hin mesta nauðsyn væri á því að veita innflutningsleyfi á öllum þeim vélum, sem nota þyrfti til lands og sjávar. Ég vil nú spyrja hann: Er ekki hitaveitan mikið nauðsynjafyrirtæki? Og hvernig gekk að fá tilraunaborinn frá útlöndum? Er nú liðið meira en ár síðan sótt var um gjaldeyrisleyfi, en það er ekki fengið enn. Ef til vill er innflutningsnefnd nú búin að veita innflutningsleyfið en gjaldeyrisleyfi ætla ég, að ekki sé enn , fengið, og hygg ég, að þar hafi ekki verið nægilega góðar undirtektir hjá gjaldeyrisnefnd. Ég get nefnt minni hluti en vélar, sem illa hefir gengið að fá innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir. Ég get minnt á þau hér — og hefi gert það oftar en einu sinni áður — netin, sem ekki fengust, þegar hægt var að ausa upp síldinni hér á Faxaflóa í haust, netin, sem ekki fengust til að veiða í þorskinn við Vestmannaeyjar. Og sömu sögu er að segja hér af Akranesi; þar hafa ekki fengizt net. Aðeins einn bátur var svo heppinn að eiga net, hinir hafa engin net fengið og ekki náð bröndu úr sjó. (SÁÓ: Hefir ekki Sigurjón á Álafossi net?). Sigurjón getur búið til net, ef hann fær innflutningsleyfi fyrir netagarni, en ég veit ekki til þess, að netagarn sé fyrirliggjandi, og fiskurinn bíður hvorki eftir Sigurjóni á Álafossi né innflutnings- og gjaldeyrisnefnd.

Svo er þetta, sem talað er um viðgerðir vegna skipaútgerðar. Þar eru engar ákveðnar tölur. Sumir tala um ¼ milljón, aðrir um ½ milljón, sumir um 1 milljón og enn aðrir jafnvel um 2 milljónir — og þetta er allt sagt um sama hlutinn. Vitanlega kosta viðgerðirnar mikið fé, en mikið af þeim er framkvæmt hér á landi. Ég hygg, að menn taki munninn fullan, ef þeir segja að fari árlega út úr landinu 40–50 þúsund krónur fyrir viðgerð á togara.

Hv. þm. viðurkenndi, að í þessari iðn væri flóð og fjara, og hann bar heldur ekki við að neita því, sem ég sagði og upplýst er orðið, að þegar átt hefði að halda landssmiðjunni við með smásmíði, þá hefði verið tap á þeim rekstri. Um smíði á mótorum er það að segja, að ég veit ekki til, að nokkurt einkaleyfi þurfi fyrir þeirri smíði, og sé ég ekki, að nokkur þörf sé á þessu frv. af þeirri ástæðu. Hinsvegar er það vitanlegt, að í fáum greinum eru framfarirnar eins örar eins og einmitt í þessari grein, og ef hætta er á því, að ekki takist að hafa mótorana fyllilega sambærilega við það allra nýjasta, sem til er í þeirri grein, þá er vitanlega verra en tilgangslaust að smíða þá. Ég benti á það í fyrstu ræðu minni, að fiskifélagið hefði haft með höndum merkilegar tilraunir á mótorum, og hefði þessi tilraunastarfsemi þegar borið nokkurn árangur, þótt ekki væri fengin full reynsla um allar vélar. Vænti ég, að þessi starfsemi félagsins haldi áfram og menn læri að velja sér eingöngu fullkomnar vélar, og láti ekki ginnast af skrumauglýsingum um óhentugar eða ónýtar vélar.

Þá talaði hv. þm. um þá húsgagnasmíði, sem nú er hér innanlands. Þurfti nokkurn ríkisrekstur eða nokkra einokunarlöggjöf til þess að koma þeirri smíði af stað? (SÁÓ: Er ekki innlenda húsgagnasmíðin vernduð með tolli?). Það eru margar aðrar innlendar vörutegundir tollverndaðar, og um það þarf enga sérstaka löggjöf. — Það hefir ekki verið talið, að hér þyrfti ríkishúsgagnaverksmiðju.

Hv. þm. efaðist um, að það dæmi, sem ég tók af skriðu, ætti hér við. Vildi hann telja, að þetta væri svo lítið atriði, að ekki ætti við að líkja því við skriðu. En er það ekki einmitt einkenni skriðunnar, að í fyrstu er hún smá? Fyrst losnar lítil tá, en svo tekur hún æ meira og meira með sér, og eftir því, sem lengra kemur niður hlíðina, verður skriðan geigvænlegri, og hleypur svo að lokum yfir tún og engjar, byggð og bæi, og eyðir því, sem fyrir verður. Ég get vel hugsað mér það, að þegar bóndinn sér ríkisreksturinn vaxa ár frá ári, þá fari hann að hugsa til skriðunnar, og að svo geti farið, að hún renni yfir sveitirnar, ekki eingöngu á þann hátt, að jarðir verði keyptar af bændum, heldur jafnvel líka þannig, að búreksturinn verði framkvæmdur af ríkinu. Það eru til þeir menn í þessum flokki, sem vilja það, að allir verði launamenn hjá því opinbera, og þegar svo er komið, þá fer nú víst að ganga vel með fjárhaginn.