08.05.1936
Efri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1359 í B-deild Alþingistíðinda. (1921)
109. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum
*Jón Baldvinsson:
Hv. 1. þm. Reykv. virðist ekki hafa fylgzt vel með þessum umr. Þó að ég bryti ekki atkv. mínu um þetta frv., hvernig sem fer um tekjuaukafrv. í Nd., þá hafa aðrir þdm. lýst því yfir, t. d. hv. 2. þm. S.-M., að hann hagaði atkvæðagreiðslu sinni um þetta frv. eftir því, hver úrslit yrðu um tekjustofnafrv. sveitar- og bæjarfélaga í Nd. (MG: Er það gert af velvilja til málsins?). Það skal ég ekkert um segja. En meðan ekki er útséð um, hvernig þetta fer í Nd., þá er vitanlega mjög óeðlilegt að ganga hér til atkv. um þetta frv. nú.