08.05.1936
Neðri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (1937)

134. mál, nýbýli og samvinnubyggðir

*Jón Pálmason:

Ég var ekki hér viðlátinn í nótt sem leið, þegar þetta mál var tekið á dagskrá til 2. umr., og átti því ekki kost á að mæla fyrir brtt., sem ég ásamt hv. þm. Borgf. á á þskj. 529. Eins og menn hafa sjálfsagt veitt eftirtekt. felur hún það í sér, að nýbýlastjórninni sé heimilt, þegar sérstaklega stendur á, að láta heyra undir þessi lög þau býli, sem eru í eigin ábúð, en þar sem öll hús eru metin innan við 800 kr., og það er jafnframt tilskilið, að styrkupphæðin til hvers býlis fari ekki fram úr 1500 kr. og lán jafnhá upphæð. Þó að þessi brtt. hafi þó nokkuð víðtæk áhrif í för með sér, þá er það svo, að úr því að farið var á annað borð að breyta þessum lögum nokkuð frá því, sem gengið var frá þeim á síðasta þingi, þá vildi ég ekki láta þá breyt. fara svo í gegn, að ég gerði ekki tilraun til þess að koma að breyt., sem stefndi í þessa átt.

Sannleikurinn er sá, að um fjölda af þeim býlum, sem hér er um að ræða, er þannig háttað, að það veltur á því á næstunni, hvort þau fara í eyði eða ekki, að þeim mönnum, sem þar búa, verði veitt einhver aðstaða til þess að laga sín hýbýli. Öllum hv. þm. má vera það ljóst, hvernig þeir bústaðir munu vera, þar sem öll hús á jörðinni eru metin innan við 800 kr. Þegar svo er komið, að það getur orkað því, hvort umrædd býli verði áfram byggð eða ekki, að þau fái einhvern styrk frá því opinbera í þessu skyni, þá er það augljóst mál, að það er eyðsla, en ekki sparnaður, að hamla á móti því, að Alþingi geri ráðstafanir til þess að veita styrk í þessu skyni. Ef fleiri eða færri af þessum býlum halda áfram að fara í eyði, þá verkar það á þann hátt, að annaðhvort bætist það fólk, sem hér á hlut að máli, við atvinnuleysingjahóp kauptúna og kaupstaða, eða þá að fátækraframfærslan eykst frá því, sem áður var. Þó að maður verði að gera ráð fyrir því, að fé það, sem ætlazt er til, að veitt yrði í þessu skyni, væri tekið af því fé, sem fer til vegabóta í landinu, þá held ég, að það borgi sig fullkomlega að taka eitthvað af því til þess að anna því hlutverki, sem hér um ræðir. Í fjárl. er ætlað til vega nokkuð yfir ½ millj. kr. Það er athugandi, að fólkið lifir ekki á vegum, þó að þeir séu góðir. Það verður að byrja á því að styðja það og stuðla að því, að viðkomandi aðiljum sé unnt að draga fram lífið, án þess að neita sér um allar þær kröfur, sem almenningur í landinu gerir til lífsins.

Það var svo með þessa till., að meiri hl. landbn. var búinn að ganga inn á að samþ. hana, ef á annað borð yrði flutt frv. til breyt. á þessum l., en þeir hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. N.-M. drógu sig til baka á síðustu stundu með það að láta þessa breyt. ná fram að ganga núna, og þetta byggðu þeir á þeirri forsendu, að það yrði að taka þetta mál til nánari athugunar á næsta þingi og á öðrum grundvelli en hér er farið fram á.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara um þetta fleiri orðum að sinni. Ég vænti þess, að hv. þm. skilji það og sjái, að hér er um mál að ræða, sem Alþingi verður að taka afstöðu til á næstunni, á þann veg, að úr verði bætt.