08.05.1936
Neðri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1365 í B-deild Alþingistíðinda. (1938)

134. mál, nýbýli og samvinnubyggðir

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Það var ekki alls kostar rétt hjá hv. þm. A.-Húnv., að n. hefði verið búin að taka fullkomlega afstöðu með þessu máli. En hinsvegar var þetta, eins og ég skýrði frá við 2. umr. málsins, talsvert ýtarlega rætt innan n., og nm. voru flestir sammála um, að það væri nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að bæta úr þessu, sem hv. þm. talaði um og till. fjallar um. Við litum þannig á, og okkur var það ljóst við nánari umhugsun um málið, að það sé eðlilegra og réttara að bera þetta fram sem sérstakan kafla í sambandi við lögin um byggingar- og landnámssjóð. Við álítum ekki rétt að blanda þessu atriði viðvíkjandi eldri býlunum um of saman við lögin um nýbýli og samvinnubyggðir. Það yrði vitanlega mjög mikill áróður frá þeim mönnum, sem rétt hafa til þessa styrks, að fá af því fé, sem ætlað, er til nýbýla, og það gæti orðið til þess að draga að miklum mun úr þeirri viðleitni, sem kemur fram í lögunum um það að fjölga býlum í landinu. Við höfum því óskað þess, að minni hl. dragi till. til baka, því samþykkt hennar núna myndi engu orka um það að bæta úr málinu á þessu þingi. Það hefir þegar verið ráðstafað því fé, sem fyrir hendi er til nýbýla og samvinnubyggða, og það hrekkur ekki til. Eins og ég skýrði frá á fundinum í gær, þá má taka þetta upp á næsta þingi, og vil ég því enn óska þess, að flm. till. sjái sér fært að taka hana aftur, því samþykkt hennar núna hefir engin áhrif í þessu máli á yfirstandandi ári. Meiri hl. n. leggur því á móti þessari tillögu.