08.05.1936
Neðri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1366 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
134. mál, nýbýli og samvinnubyggðir
*Jón Pálmason:
Báðir þessir hv. nm., sem talað hafa hér, viðurkenna, að hér er um að ræða þörf á endurbót, sem yrði að taka til athugunar, enda er annað ekki hægt. Hv. þm. Mýr. lagði áherzlu á það, að þetta yrði tekið á þann veg, að borinn yrði fram á næsta þingi sérstakur kafli til breyt. á l. um byggingar- og landnámssjóð, sem hefði það hlutverk með höndum, sem ætlazt er til með okkur brtt. Þetta er náttúrlega möguleiki út af fyrir sig. En í sjálfu sér finnst mér, að það sé einfaldast og eðlilegast að taka þessi býli, sem þarna er um að ræða, í sambandi við þessi lög, sem hér á að fara að gera breyt. á, af því að það er ákaflega óeðlilegt, að gangurinn í þessu sé sá, að jarðir þurfi að liggja í eyði í nokkur ár til þess að komast undir þau lög, sem hér um ræðir. Það er eðlilegra, að það sé komið í veg fyrir það, að þessi býli fari í eyði.
Þessi till. er nú ekki ákveðnari en það, að það er heimilt fyrir nýbýlastjórnina, þegar sérstaklega stendur á, að taka einstaka býli, sem byggð eru, undir þetta ákvæði. Það er auðvitað atriði út af fyrir sig hjá hv. þm. Mýr., sem ekki er ástæða til þess að rengja, að því fé, sem ætlað er til þessa á þessu ári, sé þegar ráðstafað, svo að ekki sé hægt að taka neitt af því núna. En ef þessi heimild er samþ. núna, þá er það auðséð, að það er frekar hvöt til þess, að þeir, sem hér eiga hlut að máli, leggi hart að sér nú við þá lélegu kosti, sem þeir búa við, ef það er einhver von um það, að þeir fái úrbót á þessu sviði á næsta ári.
Hvað það snertir, sem síðasti ræðumaður, hv. þm. Hafnf., sagði, að það mætti ekki taka neitt af því fé, sem ætlað er til nýbýla, til þessara hluta, þá get ég að mestu látið nægja það sama sem ég svaraði hv. þm. Mýr. En ég verð að halda því ákveðið fram, að það er óeðlilegt og ekkert vit í því að veita 100 þús. kr. til atvinnubóta fyrir fólkið, sem hrúgast saman í kaupstaði og kauptún, þar sem ekki eru eðlileg atvinnuskilyrði fyrir hendi, jafnhliða því sem jarðirnar í sveitunum halda áfram að leggjast í eyði, þar sem skilyrði eru nægileg frá náttúrunnar hendi til þess, að fólkið geti unnið fyrir sínum þörfum. Það er ennfremur óeðlilegt, að það eigi sér stað, að lagðar séu stórar upphæðir í byggingu verkamannabústaða í stærstu kaupstöðunum fyrir fólk, sem þangað er komið, án þess að eðlileg atvinnuskilyrði séu fyrir hendi, jafnhliða því, sem ekkert er sinnt því brýn, verkefni, sem er efni þeirrar till., sem hér um ræðir.
Ég held því, að það sé ákaflega varhugavert að þverskallast lengur við að gera þær ráðstafanir, sem nauðsynlegt er, að gerðar séu í þessu sambandi. Annars verður þessi till., eins og gefur að skilja, að sæta þeim örlögum, sem meiri hl. hv. dm. telur eðlilegt, að hún sæti.