06.05.1936
Neðri deild: 65. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)
137. mál, viðbótarrekstrarlán handa Landsbanka Íslands
*Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Grg. frv. ber það með sér, hvers vegna þetta frv. er hér fram borið. Það er gert eftir ósk Landsbanka Íslands, og sjálfsagt vegna þess ástands, sem nú ríkir í atvinnulífi þjóðarinnar og atvinnumálunum og búast má við, að haldi áfram. Það er kunnugt, að nú er fiskaflinn eftir aðalvertíðina hér sunnan og vestanlands miklu minni en hann hefir verið síðastl. 10 ár á sama tíma árs. Og þó hefir veiðitækjum fjölgað stórum á síðustu missirum. Aflamismunurinn frá því, sem var í fyrra, er um 17 þús. tonn, og samkv. verðlagi nemur það ca: 8 millj. kr. Þessi mismunur hlýtur að koma tilfinnanlega í ljós á sínum tíma í viðskiptum þjóðarinnar út á við. Þess vegna er það öruggara, að landsbankinn fái þessa lánsheimild, hvað sem að höndum kann að bera. — Meiri hl. fjhn. hefir flutt þetta frv. eftir beiðni ríkisstj. og landsbankans. Mér er ekki kunnugt um, að ágreiningur sé um þetta mál frá hálfu minni hl. fjhn., en hann mun þá gera grein fyrir afstöðu sinni við þessa umr. Frv. er flutt af meiri hl. fjhn., og leggur hann til, að það verði samþ.