06.05.1936
Neðri deild: 65. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1369 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)
137. mál, viðbótarrekstrarlán handa Landsbanka Íslands
*Ólafur Thors:
Við sjálfstæðismenn í fjhn. höfum ekki gerzt meðflm. þessa frv., eins og þskj. 562 ber með sér, þar sem stendur, að það sé flutt af meiri hl. fjhn. — ekki af því, að við viðurkennum ekki fyllilega, að alvöruástand ríki nú á sviði íslenzks atvinnulífs. Kunnugum þarf ekki að færa önnur rök að hinu erfiða ástandi en þau, sem komu fram í skýrslu þeirri, er hæstv. fjmrh. las upp um aflann árin 1925–'36 og sýndi, að þorskaflinn nú 1. maí náði ekki einu sinni 40% af því, sem veiðzt hafði 1. maí 1934. Liggur það í hlutarins eðli, að slíkur aflabrestur veldur miklum vandræðum, ekki bara útvegsmönnum, sjómönnum og verkalýð, sem á afkomu sína undir sjávarútveginum, heldur og allri þjóðinni, svo mjög sem hún á alla sína afkomu undir því, að skaplega veiðist úr sjónum. Þessi hlið málsins er því viðurkennd af Sjálfstfl., enda höfum við allgóð skilyrði til að vita, hvar skórinn kreppir. Við játum um leið þörfina á því, að hið opinbera hlaupi undir bagga og dragi úr þeim geigvænlegu afleiðingum þessa ástands, sem að steðja. Að við þó ekki gerðumst meðflm. frv., stafar af því m. a., að ég tel ekki líkur til, að þær ráðstafanir, sem farið er fram á í frv., nægi til að bæta að verulegu leyti úr vandræðunum. Er það sannmæli, sem hæstv. fjmrh. sagði, að með þessu væri ekki hægt að leysa nema lítið brot af því, sem nauðsyn bæri til. Við hefðum verið reiðubúnir að ræða um, með hvaða ráðstöfunum hægt væri að mæta örðugleikunum, svo að von gæti verið um verulega úrlausn. En við höfum ekki kosið að gerast meðflm. að þessu frv., því að okkur sýnist sem hér sé fyrst og fremst um það að ræða að gera ráðstafanir til þess, að núverandi gjaldeyrisskipan verði þess ekki valdandi, að ríkið verði í vanskilum með skuldir sínar. Ríkið á nú fyrir maí- eða júnílok að greiða vexti og afborganir af skuld, 1 millj. kr. eða meira, svo að líkur eru til, að þetta gleypi helming eða meira af þeirri upphæð, sem hér um ræðir. Og þó að við viljum ekki eiga hlutdeild í því, að ríkið verði í vanskilum, teljum við sem þingminnihl., að stj. eigi að ganga í fararbroddi um ráðstafanir þær, sem gera þarf til þess, að ríkið geti staðið í skilum.
Það er rétt hjá hæstv. fjmrh., að frv. er fram borið samkv. tilmælum bankaráðs landsbankans. Það er líka rétt, að bankaráð samþ. það með öllum atkv. Við sjálfstæðismenn, sem sæti eigum í bankaráði, gerðum þá grein fyrir atkv. okkar, að fyrir bankans hönd vildum við leggja lið þessari ósk, þó að við vildum ekki sem þm. hvetja til þess, að við henni væri orðið. Ég þori að fullyrða, að Sjálfstfl. mun ekki leggja stein í götu málsins, en ég get ekkert sagt um einstaka þm. En flokkurinn mun heldur ekki leggja málinu annað lið en það að sitja hjá við atkvgr.
Í þessu sambandi vil ég spyrja hæstv. fjmrh., hvort hann telji ekki slíka lántöku brjóta í bága við yfirlýsingu þá, sem hann og stjórnarflokkarnir gáfu haustið 1934 í tilefni af lántökunni, sem gerð var í London um þær mundir. Ég spyr hann, hvort hann telji slíka lántöku með ríkisábyrgð í samræmi við þá yfirlýsingu. Ef hann svarar neitandi, þá spyr ég, hvort hann ætli sér að leita til hins fyrra lánveitanda um samþykki fyrir þessari nýju lántöku. Því að þó að hæstv. fjmrh. hafi persónulega bundið sig til að leita ekki fleiri lána, getur hann auðvitað farið fram á samþykki lánveitandans til að taka nýtt lán.
Ég vil svo láta það í ljós sem mína persónulegu skoðun, þó að ég hafi ekki umboð til að lýsa yfir henni fyrir hönd Sjálfstfl., að það er varhugavert að halda áfram þessa braut, sem Ísland hefir gengið um mörg undanfarin ár, því að alkunnugt er, að ríkisbúskapurinn hefir verið rekinn með halla nú um 6–7 ár eða lengur. Það er vitað, að sumpart stafar þetta af því, að ríkisvaldið hefir með skattalöggjöf sinni seilzt of djúpt í vasa þjóðarinnar, en hinsvegar dugar ekki að neita því, að afrakstur framleiðslunnar hrekkur ekki til að standa undir kaupgreiðslunum. Afleiðingin af þessu hlýtur svo að verða sú, að íslenzk króna hrapar í verði.
Ég er nú þeirrar skoðunar, að langt sé síðan raunverulegt verðgildi íslenzkra peninga var orðið miklu minna en skráð var. Og eitt af því, sem ég hefi á móti þessum stöðugu lántökum, er það, að með þeim er verið að dylja þjóðinni þennan sannleika. Afleiðing slíkrar skráningar krónunnar hlýtur að verða gjaldeyrisvandræði, eins og líka gjaldeyrisörðugleikar á hverjum tíma segja til um það, hvort krónan er rétt skráð eða ekki. Með því að taka ný og ný lán er þessi áttaviti gengisskráningarinnar truflaður og þjóðin svipt nauðsynlegri leiðbeiningu í þessu efni.
Ég vil drepa á það, að ef krónan er of hátt skráð, þannig að framleiðendur gjalda fleiri íslenzkar krónur fyrir framleiðslu sína en þeir fá inn í staðinn, þá leiðir af því, að í umferð manna á milli verða fleiri íslenzkir peningar en erlendur gjaldeyrir, sem fyrir vörurnar fæst, getur staðið undir. Fleiri krónur leita á um kaup á erlendri vöru en við höfum gjaldeyri til að snara út fyrir þessa vöru.
Þessar hugleiðingar eru mæltar frá mínu persónulega sjónarmiði, án þess að ég hafi umboð frá Sjálfstfl. til að lýsa þeim sem hans skoðun. Sé ég svo ekki ástæðu til að fylgja frv. úr hlaði með fleiri orðum. Í grg. frv. stendur, að landsbankinn muni ekki nota heimildina nema viðskiptaástandið geri það óhjákvæmilegt. Gagnvart slíkri yfirlýsingu bankans vill Sjálfstfl. ekki leggja stein í götu málsins, þótt hann hinsvegar telji ekki ástæðu til að leggja málinu beint lið.