06.05.1936
Neðri deild: 65. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í B-deild Alþingistíðinda. (1958)
137. mál, viðbótarrekstrarlán handa Landsbanka Íslands
*Hannes Jónsson:
Það er nú sennilega ástæðulítið eða tilgangslaust a. m. k. að tala um þetta frv., því það mun verða samþ., og sennilegt, að það sé óhjákvæmilegt fyrir ríkisstj. að fá þetta frv. samþ. á þessu þingi.
Ég get ekki stillt mig um að benda á það, hvað óheppilega er komið fyrir þjóðfélaginu, þegar það verður að bjarga sér á því að taka skyndilán, sem litlar líkur eru til, að hægt sé að borga upp á þeim tíma, sem tiltekinn er, og þjóðfélagið verður þannig út á við sem hálfgerður óreiðumaður. Hér er um að ræða rúmlega 2 millj. kr., sem á að taka að láni að nýju í viðbót við þann erlendan gjaldeyri, sem bankinn hefir fengið til umráða, m. a. með Sogsvirkjunarláninu og þeim ríkissjóðslánum, sem tekin voru til þess m. a. að greiða upp lausaskuldir ríkisins við bankann, þar var um nýjan gjaldeyri að ræða, sem bankinn hafði yfir að ráða.
Það er orðið innifrosið fé, og svo á enn að bæta við milljónum, sem litlar líkur er til, að það verði öðruvísi en að þær frjósi inni.
Allt stafar þetta af því, að ástæður atvinnuveganna eru þannig, að framleiðslan getur ekki borið sig hjá þjóðinni. Óhjákvæmileg afleiðing af því hlýtur að verða skuldasöfnun ár frá ári, sem ekki verður stöðvuð á þann hátt, sem hæstv. ráðh. ætlast til. Það er aðeins hægt að taka fyrir þessa skuldasöfnun með því að skera fyrir meinsemdina sjálf,, en það er sjálf rekstrarafkoma atvinnuveganna í landinu. Þetta verður Alþingi og ríkisstj. að gera sér ljóst, að það þýðir ekkert að blinda sig á því að taka skyndilán, sem á svo að greiða með von um betri afkomu, án þess að nokkuð sé breytt hinum raunverulegu ástæðum, sem liggja til grundvallar, en það er hin erfiða afkoma atvinnuveganna í landinu.
Það hefir verið minnzt á það í þessu sambandi, af hv. þm. G.-K., að ein aðalástæðan fyrir þessu öfugstreymi í atvinnulífinu hér á landi sé hin rangláta gengisskráning, sem hér hefir farið fram í mörg ár. Þetta er í raun og veru viðurkennt, og það af þeim mönnum, sem fræðilega geta bezt um þetta dæmt, og þetta á við um marga aðra, sem hafa þó kaldan veruleikann fyrir augum og hljóta því að geta myndað sér skoðun út frá því. En þrátt fyrir það, þó slík yfirlýsing komi nú frá hv. þm. G.-K., sem er formaður Sjálfstfl., þá hefir þó ekkert verið gert hvorki af ríkisstj., stjórnarflokkunum né Sjálfstfl., til þess að opna leið til lausnar á þessu stærsta vandamáli þjóðarinnar. Ég verð að segja það, að hér hefir ekki verið horfzt í augu við raunveruleikann. Það hefir verið reynt að horfa framhjá honum og reynt að smeygja sér framhjá orsökunum fyrir því ófremdarástandi, sem hér er og á að lækna með hreystiorðum hæstv. fjmrh., en þau hafa bara aldrei getað gert sjúkdóminn neitt bærilegri.
Um þörf bankans eða ríkisins til lántökunnar get ég ekki dæmt, því við bændaflokksmennirnir eigum þess ekki kost að kynnast utanríkismálunum, þar sem við höfum ekki fengið fulltrúa í utanrmn. og mér hefir verið synjað persónulega um að kynnast þeim málum, eins og t. d. samningum milli Íslands og annara ríkja, þó að það sé náttúrlega óneitanlega hart, að alþm. skuli ekki fá að kynnast þeim hlutum. En e. t. v. er það ekki verjandi, þó að maður verði fyrir slíkri útilokun, að bregða fæti fyrir þær ráðstafanir, sem ríkisstj. telur nauðsynlegt að gera til þess að landið standi í skilum.
En jafnframt finnst mér nauðsynlegt að benda á, að hér er stefnt út á hálan ís, svo hálan, að mér þykir ekki líklegt, að hæstv. fjmrh. verði stætt á honum. Ég hefi viljað nota tækifærið til að benda á, að möguleikinn til að standa í skilum er veikur, og ákvæðið um, að þessi lántaka skuli vera til eins árs, er í rauninni ekkert nema blekking, ef það ber að skoða sem loforð um greiðslu eftir ár frá því, að lánið er tekið. Því að ef ekki er gert neitt til að breyta um stefnu Og reyna að bjarga atvinnuvegunum úr öngþveiti því, sem þeir eru i, þá eru engar líkur til, að slík greiðsla geti farið fram, því að eins og oft hefir verið bent á hér á Alþingi, þá er fyrsta skilyrðið, að atvinnuvegirnir beri sig. En meðan þeir eru reknir með tapi og minnkandi framleiðslu, þá eru litlir og þverrandi möguleikar á að standa í skilum. En eftir því, sem atvinnuvegirnir standa betur fjárhagslega, þá verður aðstaðan betri, ekki aðeins um að standa í skilum um vaxta- og afborganagreiðslur, heldur kannske líka til þess að grynna ofurlítið á skuldasúpunni. En það er eins og það sé fyrsta og eina takmark ríkisstj. að slá peninga til þess að fljóta í augnablikinu, en slík starfsemi er algerlega óverjandi.