27.04.1936
Neðri deild: 57. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (197)
103. mál, landsreikningurinn 1934
Frsm. (Sigfús Jónsson):
Fjhn. hefir haft frv. þetta til athugunar og borið það saman lið fyrir lið við LR. ársins 1934, og hefir ekkert fundið við það að athuga og leggur til, að frv. verði samþ.