08.05.1936
Efri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (1972)

137. mál, viðbótarrekstrarlán handa Landsbanka Íslands

*Magnús Jónsson:

Eins og sést á bréfinu frá stjórn landsbankans, sem prentað er í grg. frv., þá hefir sú ályktun, sem þar er prentuð, verið samþ. með samhljóða atkv. bankastjórnarinnar og þeirra, sem eiga sæti í bankaráði landsbankans. Þar sem ég var einn af þeim, sem greiddu atkv. með því, að bankinn færi fram á þetta, þá þykir mér ástæða til þess að gera grein fyrir minni afstöðu til frv. hér á þingi.

Við, sem erum kosnir af Sjálfstfl. í bankaráðið, greiddum atkv. með þessu, en við gerðum þá grein fyrir atkv. okkar, að þó að við teldum rétt, að bankinn færi fram á þetta, þá hefðum við óbundnar hendur með okkar þingmannsatkv., þegar til afskipta þingsins kæmi, og mun ég ekki greiða atkv. um málið.

Eins og sést af grg., og hæstv. ráðh. hefir líka minnzt á, þá er þessi aukalántökuheimild hvergi nærri fullnægjandi, ef ekki rætist úr um afla það sem eftir er ársins. Það er alveg auðsætt, að lántökuheimildin er að því leyti ófullnægjandi ein út af fyrir sig.

Það er líka dálítið, sem er athugandi í þessu sambandi, og það er, að þegar bankinn fær ofurlítið olbogarúm í svipinn, að menn freistist til þess að leita á hann í féleysi því, sem nú er, bæði einstaklingar og hið opinbera, t. d. bæjarfélögin. Það er viss hætta í því fólgin fyrir bankann að fá slíka lánsheimild, og það mæðir á bankastjórninni að standast þær kröfur, sem til hennar kunna að verða gerðar í þessu efni. Hinsvegar hefir þetta verið samþ. út frá þeirri viðurkenningu, að það verði í lengstu lög að reyna að komast hjá því, að bankinn, aðallega í hans viðskiptum milli landa, komist í þrot um að geta yfirfært peninga. Nú má segja, að bankinn þurfi aldrei að komast í þrot. Bankinn mun geta varizt eftirspurninni um erlendan gjaldeyri með nógu harkalegum ráðstöfunum innanlands. Á hinn bóginn þyrfti til þess að beita svo harkalegum ráðstöfunum, að það væri lítt æskilegt, að það þyrfti að grípa til þeirra. Þess vegna hefir bankastjórnin tekið þann kost, að ríkisstj. aflaði sér þeirrar heimildar, sem hér um ræðir.

Ég vildi í þessu sambandi beina því til hæstv. fjmrh., hvort slík umleitun og slík ábyrgð, sem ríkið ætlar hér að ganga inn á, hvort það færi ekki í bága við þau ummæli, sem hann hafði við fjármálamenn ytra um það, að ríkisstj. mundi ekki taka frekari lán en þar var um að ræða, þegar yfirlýsingin var gefin. Það nær vitanlega engri átt, þegar hæstv. ráðh. hefir gefið slíka yfirlýsingu, að hann þá geri nokkuð, sem gæti litið út sem brigð þeirrar yfirlýsingar. Ég treysti þessu, þegar þetta var til umr. í bankaráðinu, en þá var þar enginn til svars, enda er það enginn nema hæstv. fjmrh. sjálfur, sem getur verið þar til svars. Ég þykist vita, að hann muni ekki telja sig bundinn af þessari yfirlýsingu, úr því að hann fór fram á, að slíkt frv. væri flutt. Hann mun ætla sér að taka á móti heimildinni, og nota hana, ef honum býður svo við að horfa. Ég vænti þess að fá að heyra skýlaus svör um þetta atriði.