04.03.1936
Efri deild: 15. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1986)

34. mál, atvinna við siglingar

*Magnús Jónsson:

Eins og hv. þdm. hafa séð, flyt ég hér á þskj. 89 eina brtt., sem snertir tvær gr. frv., nefnilega 5. og 7. gr. Þessi brtt. mín fer fram á það, eins og hv. 4. þm. Reykv. gat um, að réttur þeirra, sem tekið hafa smáskipapróf, yrði látinn haldast óbreyttur. — Annars var dálítið erfitt að átta sig á því hjá hv. frsm. sjútvn., hvað ræða hans snerist aðallega um, því að hann talaði ýmist um það frv., sem nú liggur fyrir, eða um núgildandi lög, eða um frv., sem lagt var fram á síðasta þingi. Mátti því stundum skilja hann svo sem hér væri verið að herða á kröfunum um menntun skipstjóra og að réttur þeirra, sem hefðu smáskipapróf, væri minnkaður, þannig að hann hefði áður náð til skipa, sem eru 100 rúmlestir, en ætti nú að færast niður til skipa, sem eru 75 rúmlestir. En þetta er misskilningur. Með frv. er farið fram á að auka þennan rétt, svo að hann nái nú til skipa, sem eru 75 rúmlestir, í stað þess að hann nær nú aðeins til þeirra, sem eru 69 rúmlestir. Hvað einhverntíma hefir komið fram í frv., sem aldrei hefir komið til umr., er allt annað mál. Þótt áður hafi legið fyrir óskir um að auka þennan rétt meira, þá er það málinu óviðkomandi. Kjarni málsins er sá, að hér er farið fram á að auka rétt þeirra, sem minni menntun hafa, láta þá fara með stærri skip, fara víðar yfir, flytja meiri og dýrari varning, hafa ábyrgð á fleiri mannslífum og yfirleitt að öllu leyti meiri rétt og meiri vanda. Það er þetta, sem er umræðuefnið.

Mér finnst það undarlegt af hv. frsm., að hann skuli tala um till. mína eins og hún sé til þess að rýra gildi frv., en lýsa því svo hátíðlega yfir, að stefna frv. sé að auka kröfurnar um menntun og undirbúning, og till. mín er því beinlínis í samræmi við þá yfirlýstu stefnu frv. að herða á kröfunum. Í þessu máli hefir þróunin því miður stefnt í öfuga átt, sem sagt er, og réttur þeirra, sem hafa notið minni menntunar, hefir verið aukinn. Ég er ekki svo kunnugur þessu máli, að ég geti rakið sögu þess lengra en til Ísafjarðar, en ég man ekki betur en að þessi réttur væri miðaður við skip, sem voru 30 rúmlestir, en þetta væri svo aukið vegna óska frá Ísfirðingum; ég man ekki, hvort aukningin var gerð öll í einu eða ekki, en nú er svo komið, að þessi réttur nær til skipa, sem eru 60 rúmlestir að stærð, og enn koma fram kröfur um aukin réttindi. Þetta kalla ég að þróast í öfuga átt.

Ég skal ekki dæma um, hvernig þetta er í öðrum löndum; mín menntun er á öðru sviði, og ég ætla ekki að keppa við þá, sem hafa sérþekkingu á þessu sviði og sérstaklega hafa kynnt sér þau mál. En ég vil aðeins ekki meta þessar röksemdir meira í þessu máli heldur en öðrum. Það þarf að kynnast svo mörgu til þess að vita, hvort þessi reynsla annara þjóða er til fyrirmyndar fyrir okkur. Fyrst og fremst þarf að athuga, hvort þessar þjóðir gera nógu strangar kröfur. Svo þarf að vita, að hvaða leyti þeirra aðstaða er önnur. Ég get ýmyndað mér, að það, að sigla hér við land á öllum tímum árs, reyni fullt eins mikið á skipstjóra eins og í öðrum löndum, sem hafa annað tíðarfar. Svo eru það ýmsar aðrar ástæður, sem um er að ræða. Ég skal ekki segja um það, hvernig það er í Noregi, eða hvaða munur er á því, hvað skip afbera sjó þar og hér. Það er áreiðanlega mikill vandi að fara með skip hér við strendur landsins á hvaða tíma sem er. Það er því út frá minni leikmannsþekkingu séð ástæða fyrir okkur að gera strangari kröfur en aðrir gera. Það er auðvitað hægt að, segja eins og hv. frsm. n. sagði, að sjómennskan sé hlutur, sem aldrei verði lærður beinlínis, og að góður sjómaður geti komizt langt með ekki mjög miklu námi og lengra en sá, sem ekki er sjómaður að eðlisfari, kemst með öllu sínu námi. En í löggjöfinni verður að gera ákveðnar kröfur um nám og undirbúning, og undantekningartilfellin duga ekki sem regla í nokkru máli. Ég verð að segja, að alveg án tillits til þess, hvort reynslan er rétt, þá ber að draga línu milli þess, sem heimtað er til meira og minna prófs, og mér finnst sú stefna vafasöm að fara alltaf lengra í þá áttina að láta undan kröfum manna, sem er eðlilegt, að geri þær, af því að þeir uppfylla þetta skilyrði og vilja, eins og allir röskir menn, fá sem mest fyrir sína peninga. Þeir, sem hafa haft réttindi, vilja að þau nái sem lengst, og enginn lastar þá menn með smáskipaprófi, sem sækja um það á Alþingi, að þeir fái að nota þessa þekkingu sem mest og fara með skip sem allra stærst. En ef alltaf en látið undan, þá er hægt að halda áfram, og ef það verður nú fært upp í 75 rúmlestir, þá má spyrja, hvað langt verði þangað til, að tekin verður upp krafan um 100 rúmlestir, eins og mþn. ætlaði að leggja til, og eins og hv. frsm. n. hefir sagt, að muni koma fram kröfur um í Nd. Ef það verður samþ., hvað verður þá langt þangað til farið verður eftir þeim óskum, sem legið hafa fyrir þinginu um að veita undanþágu til þess að fara með skip, sem eru 150 rúmlestir? Ef ætlazt er til, að það séu að öðru leyti gerðar strangari kröfur, þá er ekki hægt að fara út í þessa breyt. Það má dæma mismunandi um það, hvaða þörf sé á því að auka þetta meira. Ég veit, að það er þörf á því fyrir dálítinn hóp manna, eða fyrir þá, sem hafa smáskipapróf. En engir aðrir hafa gagn af því. Það eru þeir sem hafa það próf, og þeir, sem framvegis taka það, sem hafa gagn af því. En er það nauðsynlegt fyrir þjóðfélagið? Er t. d. vandræði að fá menn með hina meiri þekkingu til þess að stjórna þessum skipum? Eftir því sem mér hefir virzt á plöggum þeim, sem liggja fyrir frá fulltrúum og stjórnendum í nokkrum skipstjórafélögum og stýrimannafélögum í Reykjavík og Hafnarfirði, þá hefir mér skilizt, að nóg væri af mönnum með hina meiri þekkingu til þess að fara með öll fiskiskipin, sem hér er um að ræða. Það er því ekki hægt að segja, að þessi þörf sé fyrir hendi. Ég skal ekki um það dæma, hvað kostnaðaratriðinu viðvíkur í sambandi við útgerðina. Ég vil segja, að ég met það mest á slíkum tímum, sem nú eru, þegar hvert fyrirtæki verður að berjast í bökkum, að menn gjaldi varhuga við því, jafnvel þó þeir viðurkenni, að einhver breyt. sé til batnaðar, og skoði huga sinn um það, hvort þeir eigi að samþ. breyt., ef hún verður til þess að afkoma fyrirtækjanna verður erfiðari. Ég veit ekki, hvort það liggur nokkuð fyrir um það, að þessir menn, sem hafa lokið stærra prófinu, yrðu dýrari fyrir útgerðina heldur en hinir. Ég held, að það liggi ekkert fyrir um það. Ég held ég þurfi annars ekki að fara lengra út í þetta, því málið græðir ekki á löngum umr. Þetta er stefnumunur. Á að fylgja þeirri stefnu, sem hv. frsm. n. sagði, að væri stefna frv., að herða á kröfunum til þess að auka öryggið bæði fyrir mannslífin og önnur verðmæti, eða á að láta undan síga í einstökum mikilsverðum atriðum, af því að einhver hópur manna er til, sem hefir sérhagsmuni af því, að vikið sé út af þessari stefnu? Mér skildist á hv. frsm. n., að það gæti jafnvel komið til mála, að menn með minna prófi gætu siglt til útlanda, og að hann væri að taka það fram, að þeir hefðu fært markið niður í 75 rúmlestir. En þeir geta það alls ekki. (SÁÓ: Ég sagði það alls ekki). Já, mér hafði líka áður skilizt, að hv. þm. segði, að það kæmi ekki til mála, þegar búið væri að færa þetta niður í 75 rúmlestir, að slík skip færu til útlanda. Þeir hafa rétt til að stjórna skipi í innanlandssiglingum, en það merkir fiskiveiðar við strendur landsins, allt að 60 sjómílur frá ströndinni. Enda næði slíkt engri átt, að löggjafinn léti það próf nægja til þess að sigla milli landa, fyrst verið er á annað borð að gera löggjöf um þetta. Þar sem hann talaði um, að auknar kröfur væru gerðar til þess, að menn mættu sigla með dýran farm og farþega, þá get ég ekki skilið á frv., að þekkingarskilyrðunum sé nokkuð breytt. Það er breytt siglingaskilyrðunum og siglingatímanum og hvar menn hafa siglt. En með minnaskipsprófi geta menn siglt með hvaða skip sem er að 75 rúmlestum í innanlandssiglingum, og það þó þau fari hlaðin af fólki og með hvað dýran farm, sem þau fara. Það er ekki heimtað annað próf en þann aukna tíma, sem þeir hafa siglt, og aukna þekkingu á því að fara með farm. Það er satt, að í 6 gr. er ákvæði um það, að ef skip eru flutningaskip, þá eru gerðar auknar kröfur um þroska manna og þekkingu, sem af því leiðir að hafa siglt á skipum, þar sem eru svipuð störf, en smáskipaprófið nægir. Ég verð að segja, að það er dálítið undarlegt eftir þeim umr. á síðasta þingi, sem fóru fram milli mín og þessa hv. þm. um loftskeytastöðvar í flutningaskipum, og eftir öll þau orð, sem hann lét falla um öryggi mannslífa, að hann skuli gera sig að talsmanni þess að auka rétt skipstjóra á þeim skipum, sem eru í mestri hættu af öllum skipum, sem sigla hér við land, en það eru hin mörgu fiskiskip, sem stunda veiðar hér við land. Ef það er hættulegt að sigla á skipum, sem eru ef til vill 1400–2000 smálestir, milli landa, undir stjórn vel lærðra manna í brú og við vél, og með miðunarstöðvar og tæki, sem þeirra þekkingu geta að gagni orðið til þess að stjórna skipinu, — ef það er lífshætta án loftskeytastöðva, hvað er þá um sjómennina á þessum litlu bátum, sem stunda fiskiveiðar hér við land? Eða eru mannslífin á þessum bátum eitthvað minna virði en hinna, sem eru á skipum, sem sigla milli landa? Ég er hissa á því, að hann skuli ekki hafa gert sig að talsmanni þess að gera þessar kröfur sem strangastar, eins og hann sagði, að væri tilgangur frv. Ég skal svo ekki segja fleira um þetta, og út í frv. almennt ætla ég ekki að fara. Ég vil aðeins geta um það, að mér finnst óviðkunnanlegt orðalag víða í frv., þó sérstaklega í 5. gr., þar sem segir: „Rétt til að vera skipstjóri í innanlandssiglingum á skipi yfir 15 rúmlestir, en eigi yfir 75 rúmlestir að stærð, hefir sá einn, er fengið hefir hið minna skipstjóraskírteini á fiskiskipi.“ En þetta er ekki rétt, því að þeir, sem hafa meira próf, hafa líka rétt til þess. Réttara væri að segja „sem hafa að minnsta kosti hið minna próf.“ (SÁÓ: Það kemur fyrir á öðrum stað). En það er mótsögn að taka svo fast til orða um það, að sá einn hafi rétt til þess, sem hefir minna próf. Ég skal svo ekki fjölyrða meira um það að svo komnu. Ég skal aðeins geta þess, að ég hefi flutt þessa brtt. ekki einungis af minni litlu þekkingu á þessu máli, heldur að gefnu tilefni og í samræmi við óskir, sem hafa komið til Alþingis frá stjórnendum og fulltrúum nokkurra skipstjóraog stýrimannafélaga í Rvík og Hafnarfirði. Og ég veit ekki, hverra kröfur á að taka til greina, ef ekki sérstaklega kröfur þeirra manna, sem við þessi lög eiga að búa og ekki hafa sérhagsmuna að gæta viðvíkjandi málinu. Hitt finnst mér aftur á móti, þó að það sé sjálfsagt að hlýða á mál þeirra, sem hafa sérhagsmuna að gæta, að þá verði að meta þá aðstöðu, að þeir eru að berjast fyrir sérhagsmunum, eins og þeir, sem hafa minna próf. Og verður hver þm. að meta það eftir því, sem hann lítur á málið.