07.05.1936
Neðri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)
34. mál, atvinna við siglingar
*Emil Jónsson:
Við hv. 3. þm. Reykv. höfum leyft okkur að bera fram brtt. á þskj. 410, sem fer í þá átt, að réttindi þeirra manna, sem hafa minna fiskimannapróf, séu bundin við 60 smál., eins og verið hefir, en sé ekki hækkað upp í 75 smál., eins og frv. gerir ráð fyrir. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að eftir því sem verkaskiptingin verður meiri í þjóðfélaginu, eftir því verða gerðar meiri kröfur til þess, að einstaklingurinn sé starfi sínu vaxinn, og að hann leggi meira í sölurnar til þess að fullnægja þeim. Sú regla gildir alveg eins um skipstjórastéttina og aðra, að þar þurfa menn langan undirbúning og verða að leggja á sig mikið erfiði við námið til þess að öðlast áskilin réttindi. Þess vegna er ekki rétt að skerða verksvið þeirra manna, sem búnir eru að kosta sig til náms, með því að veita öðrum, sem minna hafa í sölurnar lagt, sama rétt. Munur á minna og meira prófi er töluvert mikill, enda er námið ólíkt og miðað við, að það veiti mismunandi réttindi. En stefna hins háa Alþingis virðist hafa verið sú, að þoka lengra og lengra fram rétti minnaprófsmanna. Hefir þessu verið þokað frá 30 smál., eins og það var í byrjun, í 60 smál., og nú þegar frv. kom fram, var hámarkið miðað við 100 smál., en var kippt ofulítið í lag, svo að staðnæmzt var við 75 smál.
Okkur flm. till. finnst engin ástæða til þess að hækka hámarkið, því engin sanngirni mælir með því, fyrst og fremst vegna þeirra manna, sem lagt hafa á sig kostnað og erfiði til þess að öðlast full réttindi og vera mun meira en nóg til af í landinu til þess að fara með öll skip af þessari stærð. Það munu vera á annað hundrað fullærðra skipstjóra, sem ekki hafa atvinnu eftir því, sem þeir hafa nám til. Þess vegna er síður en svo, að hörgull sé á mönnum með full réttindi, heldur er það svo, að þeir hafa ekki nærri allir atvinnu.
Annað atriði málsins, sem ekki má gleyma, er hið minnkaða öryggi þeirra sjómanna, sem eru undir forsjá skipstjóranna. Auðvitað ríður sjómönnunum ekki á einu eins mikið og því, að skipstjórinn sé öruggur og starfi sínu, vaxinn. En það verður að ganga út frá því, að meiraprófsmenn séu færari um að fara með skip en hinir, og er því beinlínis skert öryggi sjómannanna með því, sem farið er fram á í frv. Ég verð að segja, að mér kemur það undarlega fyrir, að meiri hl. hv. sjútvn., eða jafnvel n. öll, skuli standa fyrir því að skerða öryggi sjómannanna.
Það hefir verið sagt, að að nokkru leyti sé séð fyrir þessu með frv. um stýrimannaskóla og aukinni kennslu þar. En eftir að hafa kynnt mér það frv., sé ég ekki, að þar sé gert ráð fyrir þeim réttarbótum, sem réttlæti þessa hækkun. Eins og ég sagði áðan, hefir þetta verið hækkað áður úr 30 smál. upp í 60, og nú upp í 75 smál. Ef svo verður haldið áfram, getur svo farið, að þetta verði fært alveg inn á svið fulllærðra manna, og sé ég þá ekki ástæðu til þess að vera að hafa stýrimannaskóla, ef ólærðir menn fá öll sömu réttindi og þeir, er leggja á sig langt nám.
Vænti ég, að hv. þm. lagfæri þetta aftur og lækki hámarkið úr 75 smál. í 60 smál.