07.05.1936
Neðri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)
34. mál, atvinna við siglingar
*Sigurður Kristjánsson:
Ég ætlaði ekki að taka til máls, þó ég sé einn í sjútvn., sem haft hefir málið til meðferðar. Ekki fyrir það, að ég sé þeirrar skoðunar, að frv. hafi ekki fengið góðan undirbúning. En þrátt fyrir það er enn ágreiningur um þetta atriði, hve réttindi minnaprófs eigi að ná til stórra skipa. Og ágreiningurinn er ekki um það, sem hv. þm. Hafnf. lagði áherzlu á, að mönnum þyki svo illa séð fyrir örygginu á sjónum. Hér er ekki um það að ræða. En skoðanamunurinn snýst um það, hvar eigi að vera skipting í þessu máli, hvort vera eigi, eins og frv. gerir ráð fyrir, einskonar milliskipstjórastétt, sem hafi rétt til að fara með skip í innanlandssiglingum, eða hvort þeir eigi að hafa réttindi, sem sigla skipi úr sinni heimahöfn aðeins, en verði að taka fullkomnara próf til þess að mega fara frá heimahöfninni eða vera í utanlandssiglingum. Skipstjórastaðan veitir mönnum slík fríðindi í kaupgreiðslum, að ekki er mikið, þótt heimtað sé tveggja ára nám fyrir hana. Það er ekki mikið, þegar það er athugað, að til þess að vera barnakennari þarf að eyða þrem vetrum á kennaraskólanum auk nokkurs framhaldsnáms. En þetta atriði verður að líkindum ekki leyst nú á þingi. Ef hv. d. breytir þessu atriði, kemst málið ekki gegnum þingið, því að svo mikill ágreiningur var um það í Ed. Hinsvegar er það ekki vansalaust að koma frv. ekki af nú, þar sem það hefir verið á ferðinni í tvö ár. Er það líka hér um bil víst, að hvernig sem frv. verður samþ. nú, þá verður því breytt bráðlega aftur. Getur verið, að markið verði fært allt niður í 311 smálestir og hafðar minni kröfur þar, en auknar aftur kröfurnar til þeirra, sem hafa stærri skip. En það er að minnsta kosti ekki hægt að álykta svo, að þeir, sem fylgja frv., hafi ekki áhuga á örygginu á sjónum.
Ég skal játa, að ég er ekki ánægður með frv. eins og það er nú. En ég er viss um, að frv. verður ekki að 1., ef því er breytt nú, og mun ég því greiða atkv. með því eins og það er.