07.05.1936
Neðri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)

34. mál, atvinna við siglingar

*Frsm. (Páll Þorbjörnsson):

Hv. þm. Hafnf. taldi það hart, að frá sjútvn. sameinaðri, að því er virtist, skyldi koma till., sem færi í þá átt að rýra öryggi þeirra, sem á sjónum starfa. Það er misskilningur, ef hann heldur, að það rýri öryggið á sjónum, þótt þessi smálestatala sé aukin úr 60 upp í 75. Ég sé ekki, hvernig það getur rýrt öryggið, að maður, sem hefir fært 69 smálesta skip með ströndum fram, fái að fara með 75 smálesta skip. Hinsvegar er það ljóst, að æskilegt er, að hver sem er njóti sem beztrar kennslu í því starfi, sem hann tekur að sér. Væri bezt, að enginn fengi að vera með skip, sem hefði minni menntun en þarf til svokallaðs fiskiskipstjóraprófs. En Alþingi hefir ekki séð sér fært að gera meiri kröfur til þessara manna en gerðar hafa verið.

Hv. þm. Hafnf. talaði um, hvernig það hefði gengið til, að réttindi þessi voru fyrst miðuð við 30 smálestir, en síðan hafi þessi tala verið hækkuð upp í 60, og að nú sé jafnvel rætt um 100 smálestir. En honum láðist að geta þess, hvaða kröfur hafa um leið verið gerðar á hverjum tíma. Áður voru ekki gerðar meiri kröfur til þeirra, sem fóru með 30 smálesta skip, en þeirra, sem nú fara með 15 smálesta báta. Smám saman hafa þessar kröfur verið auknar, jafnframt því sem menn hafa fengið aukin réttindi. Nú hafa kröfurnar verið mjög auknar að því er snertir háseta og stýrimannastörf, og krefjast þau nú meiri menntunar. Á meðan ekki eru alveg strikuð út þessi smáskiparéttindi, skaðar það ekki, þó að maður, sem farið hefir með 60 smálesta skip, fái að fara með 15 smálestum stærra skip, sem bæði er traustara og öruggara, án þess þó að vera vandasamara að stjórna.

Þá benti hv. þm. á það, að hér væri nokkuð á annað hundrað manna með fiskiskipstjórapróf, sem gengju atvinnulausir. Þetta er líklega rétt. En allur fjöldi þessara manna hefir stundað sjómennsku á skipum, þar sem undirbúningur í því verklega er ekki þannig, að hann geri þá hæfa til að vera formenn á mótorbátum, sem fiska á línu. Mikill fjöldi þessara manna hefir ekki komið á mótorbát né kynnt sér veiðar með línu.

Á meðan krafizt er fyllri þekkingar af mönnum, um leið og réttindi þeirra eru aukin, er ekki hægt að segja, að þar sé um öryggistap að ræða. Og yfirleitt hlýtur öryggið að vera því meira, sem skipið er stærra, og 15 smálestum stærra skipi er ekki vandasamara að stjórna.