08.05.1936
Neðri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (2037)

34. mál, atvinna við siglingar

*Finnur Jónsson:

Mál þetta hefir tekið þeim breytingum í Ed., að 59. gr. hefir verið sett inn aftur eins og hún var upphaflega í frv., en hún veitir mönnum með smáskipaprófi samkv. l. nr. 40 1922 rétt til þess að stýra skipum allt að 75 smálestum að stærð. Nd. hafði fellt brtt. um það að lækka smálestatölu þeirra skipa, er menn með minna skipstjóraprófi hefðu rétt til að stjórna, úr 75 smálestum í 60, ef þeir taka próf eftir að lögin um stýrimannaskólann hafa öðlazt gildi. En þar var jafnframt gerð sú álappalega breyt., að þeir, sem hafa tekið hið minna skipstjórapróf áður, gætu ekki fengið þessi réttindi, nema með því að setjast aftur á skólabekk. Ég held, að ýmsum hv. þm. hafi alls ekki verið ljóst, hvað fólst í brtt. þeirra hv. þm. Hafnf. og hv. 3. þm. Reykv., er þeir samþ. hana. Ed. hefir nú aftur fært þetta til betri vegar, og vænti ég þess, að Nd. samþ. frv. óbreytt eins og það er nú. Lögin um stýrimannaskólann og vélstjóraskólann eru svo nátengd þessu frv., að nái það ekki fram að ganga nú, er ekki hægt að veita þeim mönnum, sem útskrifast eftir hinum nýju lögum, nauðsynleg réttindi. En ef Nd. samþ. ekki frv. eins og það nú liggur fyrir, er hætta á, að málinu sé siglt í strand og hin lögin þar með gerð ónýt. Ég vænti því þess, að hv. d. samþ. frv. óbreytt, en felli brtt. þeirra hv. þm. Hafnf. og hv. 3. þm. Reykv. á þskj. 610.