28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)
81. mál, iðja og iðnaður
*Guðbrandur Ísberg:
Hv. frsm. iðnn. gat þess réttilega, að ég hefi skrifað undir nál. viðvíkjandi því máli, sem hér liggur fyrir, með fyrirvara. Fyrirvari minn er um afgreiðslu 2. gr. þessa frv. Eftir frv., eins og það var flutt hér í fyrstu, er gert ráð fyrir því, að hvarvetna þar sem reistar eru byggingar, hvort sem það er úr timbri eða steini, þá verði fagmenn að vinna við þær, svo framarlega sem sá maður, sem byggingu ætlar að reisa, vinnur ekki verkið sjálfur. Og menn verða að hafa það hugfast, að hér er ekki aðeins um einn fagmann að ræða, heldur getur verið um mjög marga að ræða. Ef um steinhús er að ræða, þá eru það múrarar, en ef um tréverk er að ræða, þá er það trésmiðir, sem verkið eiga að vinna. En ef á að leggja miðstöð, þá verða fagmenn á því sviði að gera það, og ef raflýsa á húsið, þá verða fagmenn á því sviði að gera það, og ef lagt er vatn í húsið, þá verður enn að kalla einn fagmann til þess. Þetta er ekkert nýmæli hvað kaupstaðina snertir. Þessi verkaskipting er alveg komin á þar. En í kauptúnum og sveitum þekkist þetta ekki, og ég álít, að það sé ekki tímabært að fyrirskipa þetta þar. Við vitum, þetta frv. er flutt af hendi iðnaðarmanna, og það er ekkert við því að segja, þó þeir geri kröfur til verndar sinni stétt. En það má ekki gleymast, að þó að við viljum iðnaðarmönnum allt hið bezta, þá erum við fulltrúar hér á þingi fyrir fleiri stéttir en þá. Við verðum líka að taka tillit til annara. Það er mín skoðun, að ef gengið er mjög harkalega til verks í þessu efni, eins og iðnaðarmenn hafa lagt til, þá sé það ekki sízt þeim sjálfum til ógagns. Þeir ná ekki því, sem þeir vilja ná, en afla sér óvinsælda, sem þeir gátu komizt hjá með því að fara hóflega í sakirnar.
Mér finnst ekki úr vegi í þessu sambandi að minnast á starfsemi bindindismanna, áður en bannlögin voru samþ. Þá held ég, að engum hafi blandazt hugur um það og það hafi verið almennt viðurkennt, að þessi starfsemi naut velvilja og virðingar allrar þjóðarinnar. En ég held mér sé óhætt að fullyrða það, að eftir að búið var að þvinga bannlögin í gegn með þeim ofstopa, sem unnið var að þeim málum með, þá hafi ekki verið hægt að segja eftir það, að þessi starfsemi eða þessi hreyfing nyti sama velvilja eða sömu virðingar og áður.
Ég vil minna á annað dæmi í þessu sambandi. Barnakennarar hafa á síðasta þingi og nú aftur borið fram kröfur um það, að það mætti ekki einu sinni segja til smábörnum, nema kvaddur væri til fagmaður úr þeirra hópi. Þetta er að ganga of langt. Ég veit, að ef iðnaðarmenn hefðu haldið til streitu þeirri kröfu, sem þeir upphaflega settu fram, að í smærri kauptúnum og úti í sveitum landsins mætti ekki reisa svo mikið sem hænsnahús án þess að kveðja til fagmann, að þá hefðu þeir áreiðanlega gengið lengra en fært hefði verið fyrir þá til þess að halda áfram vinsældum sínum. En það skal viðurkennt, að meiri hl. iðnn. hefir stillt nokkuð í hóf í þessu efni með því að undanþiggja steinsteypubyggingar, sem kosta allt að 3000 kr., og timburbyggingar, sem kosta 4000 kr. Ég verð að telja, að þarna sé nokkuð stillt í hóf, en þó hvergi nærri til hlítar. Ég álít, að úti um sveitir landsins og í smærri kauptúnum sé engin nauðsyn á því að setja löggjöf um þetta efni. Hingað til hafa menn þar leitað til fagmanna eftir því, sem þeim hefir þótt þurfa. Við opinberar byggingur má það telja undantekningarlítið, að fagmenn hafi verið notaðir, og það er engin hætta á því, að það verði farið að breyta til í þessu efni. Hinsvegar eru úti í sveitunum menn, sem má telja, að hafi unnið sem fagmenn að húsasmíði, enda þótt strangt tekið verði þeir ekki taldir fagmenn, nema að einu leyti, en það er sem trésmiðir. Þessir menn hafa oft í gegnum langt starf fengið mikla æfingu á sínu sviði. Og þó að þessum mönnum sé eftir 3. brtt. n. nú opnuð leið til að taka próf á gamals aldri, þá hygg ég, að flestir þeirra muni ekki hlíta þeim kostum, svo að það komi ekki til, að þeir sætti sig við slíkt. Ég vil benda á það, að hér er ekki um það að ræðu að taka rétt manna til að vinna verkið sjálfir af þeim. Ég fullyrði, að með því að takmarka rétt manna til þess að velja sér aðstoð í þessu efni, verði að því stuðlað, að menn fúski við það sjálfir meira en nú er og leiti ekki nema út úr neyð til kaupstaðanna til að sækja þangað fagmenn, nema þá til opinberra bygging. Menn gera það ekki vegna þess, að þar er kaupgjaldið hærra, og svo hitt, að menn hafa reynslu fyrir því, að ferðakostnaður til vinnu og frá vill verða tilfinnanlega mikill að auki. Og þar sem byggt er af vanefnum, eins og víðast er í sveitum, þá skera menn kostnaðinn við neglur sér eins og mögulegt er og reyna þó jafnframt að hafa bygginguna eins vandaða og þeir sjá sér fært. Það er alveg rangt, þegar frsm. n. sagði sem svo, að ég vildi heimila mönnum að vinna þessi verk án þess að þeir kunni nokkuð til þess. Það er ekki um neitt slíkt að ræðu. Ég vil aðeins gefa þeim mönnum, sem vilja byggju í sveitum og kauptúnum, frjálsar hendur til þess að velja sér aðstoð. Ég vil láta þá halda sömu aðstöðu til þess að velja sér aðstoð, hvort sem þeir þá velja sér tóma fagmenn eða aðeins að nokkru leyti. Það verða þeir að eiga við sjálfa sig og sníða sér stakk eftir vexti. Menn verða að hafa það í huga, að úti um sveitir og í smákauptúnum er ekki hægt að láta byggingar renta sig eins og í bæjunum, þar sem mun þykja hæfilegt, að hús gefi af sér 12 til 15 prósent í rentur. Ég veit, að í smákauptúnum mun það þykja gott, ef hús gefur af sér í til 8 prósent, og þegar um veitir er að ræða, getur það farið allt niður í 2 prósent, og þess vegna geta menn séð, að mönnum í sveitum ber nauðsyn til þess að stilla kostnaðinum í hóf. Það er fyrir þessar sakir, að ég hefi borið fram þessa brtt. við brtt. n., þannig að síðari hluti hennar falli niður og aðeins fyrri hlutinn standi, sem er svo: „Að mönnum sé skylt að nota fagmenn við byggingar í sveitum og kauptúnum með 500 íbúum og þar yfir, en í sveitum og minni kauptúnum sé heimilt að láta ófaglærða menn vinna þessi stórt og ráða sjálfir, hvaða hjálp þeir nota.“ Ég vil endurtaka það, að ég tel mjög illa farið, ef þessar tvær brtt. verða samþ. eins og þær liggja fyrir á þskj. 438. Ég fullyrði, að það verði iðnaðarmönnum ekki til framdráttar, heldur þvert á móti til að gera þá óvinsæla, því að meðan menn hafa frjálsar hendur til að vinna verkið sjálfir, þá verður aldrei hægt að hafa fullkomið „kontrol“ með því, hvaða menn ,þeir taka sér til aðstoðar, og menn munu heldur „fúska“ sjálfir við byggingarnar en að láta kúga sig.