28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

103. mál, landsreikningurinn 1934

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það eru aðeins örfá orð út af ræðu hv. þm., sem síðast talaði, þegar hann var að minnast á auglýsingastríðið milli bæjarstj. og fjmrn. Það mun vera rétt að skýra nokkuð aðdraganda málsins. Það er kunnugt, að fram til síðustu tíma hefir það verið venja, að dagblöðin í bænum fengju auglýsingar frá bænum og ríkisstofnunum hinsvegar. En þegar stofnað var blað af Framsfl., var þessu hætt, án tillits til þess, hvort það væri nauðsynlegt til að koma boðskapnum til allra. Það getur ekki orkað tvímælis, að það sé óþarfi að auglýsa í öllum blöðunum, Vísi, Morgunblaðinu og Alþýðublaðinu, ef aðeins er litið á hvað er hyggilegt til þess að koma auglýsingunum á framfæri. Það dettur engum í hug, að það fylli í nokkur skörð að auglýsa í Vísi. Það er aðeins gert vegna þess, að þeirri reglu var fylgt. En þegar Framsfl. stofnaði Nýja dagblaðið, var ekki við komandi, að þeirri reglu væri fylgt, eins og búizt hafði verið við. Svo gekk þetta þannig, að ríkisstj. fylgdi gömlu reglunni um að láta dagblöðin yfirleitt njóta auglýsinganna. En þegar það upplýstist, að Sjálfstfl. ætlaði ekki að fylgja þessari reglu, þá sá ég fyrir mitt leyti og samflokksmaður minn í ráðuneytinu enga ástæðu til þess, að halda uppi þessari reglu, án tillits til þess, hvort það væri nauðsynlegt. Þessvegna breytti ég út af þessari reglu, en þó ekki fyrr en eftir að hafa sagt fulltrúum Sjálfstfl. í bæjarstj. frá því, að ég mundi ákveðið beita mér fyrir því við samstarfsmenn mína, að ríkisstofnanirnar auglýstu ekki í blöðum Sjálfstfl., ef hann héldi áfram auglýsingastríði gegn Nýja dagblaðinu. (ÓTh: Átti að greiða peningana í flokkssjóð?). Hv. þm. verður að viðurkenna, að auglýsingar í Vísi eru beinn styrkur við blaðið, því það er vitanlegt, að ekki er nauðsynlegt að auglýsa þar til þess að koma auglýsingunum fyrir augu bæjarbúa. Enda er það á allra vitorði, að þessu hefir ekki verið hagað eftir því, hvar bezt væri að tilkynna það sem þurft hefir að auglýsa, heldur er hitt regla, sem alltaf hefir gilt, þar til blöð Sjálfstfl. brutu hana af pólitísku ofstæki.

Hv. þm. talaði mikið um það, að forstjóri áfengisverzlunarinnar fengi að vera sjálfráður um að auglýsa í Nýja dagblaðinu. En hvernig er það með hv. þm.? Er hann ekki meðeigandi að blaði, sem fær auglýsingar bæjarins bara til þess að styrkja það fjárhagslega? Því það er vitanlegt, að þær koma fyrir allra augu án þess að þær væru settar í Vísi.