28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (2053)

81. mál, iðja og iðnaður

*Pétur Ottesen:

Það er aðeins örstutt. Hv. þm. Hafnf. dró það í efa, sem ég sagði um þann mun, sem væri á kostnaði við það að nota faglærða menn og hinsvegar að nota byggingarfróða menn, sem lært hafa aðeins eða mest af reynslu við að byggja hús í sveitum. Hann sagði, að það mætti ekki líta á kaupgreiðsluna á tímann, heldur bæri að líta á heildarkostnaðinn. Ég ætla nú, að ef miðað er við reynslu í þessu efni, þá verði ekki síður óbærilegur munur á heildarútkomunni heldur en á tímakaupinu, sem þessir menn taka hvorir fyrir sig. Þetta er náttúrlega mismunandi í ýmsum tilfellum, eftir því hver maðurinn er. En þegar litið er á heildarútkomuna í framkvæmdinni í sveitunum, a. m. k. þar sem ég þekki til, þá ætla ég, að það, sem ég sagði um þetta, fái fullkomlega staðizt.

Skal ég svo ekki fara frekar út í þetta, en hugsa hinsvegar gott til um samvinnu við hv. iðnn. um að færa nokkuð út það mark, sem sett er fyrir því, að ófaglærðir menn megi fást við þessi störf.