02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (2060)
81. mál, iðja og iðnaður
*Frsm. (Emil Jónsson):
Ég skal ekki hafa hér um mörg orð. En þegar frv. var hér til 2. umr., voru samþ. við það nokkrar brtt., en eftir urðu ákvæði, sem ástæðulaust er að hafa í frv. eftir þær breyt. Er því lagt til í brtt. á þskj. 487, að síðasta málsgr. 4. gr. falli niður, þar sem próflausir menn mega vinna áfram í sveitunum próflaust. Hitt atriðið, sem brtt. fjallar um, er að aðeins þau kauptún, sem hafa 300 íbúa eða færri, megi hafa óiðnlæða menn við byggingariðnaðarstörf, en þetta var bundið við 500 íbúa.