24.04.1936
Neðri deild: 55. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)
Afgreiðsla þingmála
Hannes Jónsson:
Ég er meðflm. að frv. (um loðdýrarækt), sem ég hafði búizt við, að yrði tekið á dagskrá á morgun. Ég vil mælast til þess við hæstv. forseta, að hann sjái um, að þetta mál komi a. m. k. einu sinni á dagskrá, svo að það geti komizt til n. Það verða varla svo miklar umr. um þetta mál, að það tefji mikið störf þingsins.