24.04.1936
Neðri deild: 55. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (2076)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Að því er fyrirspurn hv. 6. þm. Reykv. snertir, vil ég taka það fram, að það hefir dregizt miklu lengur en ég ætlaðist til, að þetta mál yrði tekið á dagskrá; ætlun mín var, að málið yrði tekið fyrir á miðvikudaginn, svo að málið gæti þá fengið afgreiðslu, en af því varð nú samt ekki í það skiptið. Ég býst við, að um þetta mál verði miklar umr., svo að það er tilgangslaust að hafa það á dagskrá með mörgum öðrum málum, en ég mun við fyrsta tækifæri taka málið fyrir og ætla því góðan tíma. Ástæðan fyrir því, að ég tek þetta mál ekki á dagskrá á morgun, er sú, að ég veit, að hv. þm. er lítið um það gefið að hafa langa fundi á laugardögum.

Viðvíkjandi fyrirspurn hv. þm. V.-Húnv. vil ég taka það fram, að það var fyrir vangá mína, að þessu máli var ekki bætt á dagskrána. Það hefir verið nokkrum sinnum á dagskrá, þó að ekki hafi unnizt tími til þess að taka það fyrir, og þó að búið sé að tilkynna dagskrána að vísu, en þar sem ekki er búið að slíta fundi, vil ég verða við ósk hv. þm. og taka málið á dagskrá á morgun í þeirri von, að heppnast megi að koma því umræðulítið til n.