09.05.1936
Sameinað þing: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JBald):

Hv. þm. er vel kunnugt um, hvernig það hefir verið þessa síðustu viku þingsins, að mjög mikið hefir verið að gera, og sérstaklega þennan síðasta dag þingsins. Hv. þm. er líka vel kunnugt um það, að það er talsverður ágreiningur um þetta mál, en ég hefi þennan síðasta dag viljað sneiða hjá að taka þau mál, sem óvíst er um, hvernig fara, en deilur hljóta að verða um.