09.05.1936
Sameinað þing: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)

Afgreiðsla þingmála

*Jakob Möller:

Það er utan dagskrár, en það er annað mál, sem ég ætla að gera að umtalsefni.

Við atkvgr. um fjárl. í gær beindi ég þeirri aths. til hæstv. forseta, að hann mundi hafa ólöglega úrskurðað till. samþ., sem borin var undir atkv., en till. var um heimild fyrir ríkisstj. til þess að verja fé til útgáfu sálmabókar, en till. þessi var samþ. með atkv. minni hl. viðstaddra þm., og ég taldi, að samkv. þingsköpum væri sú till. ekki löglega samþ. Þessu til stuðnings vil ég vekja athygli hæstv. forseta á 44. gr. þingskapanna, 2. málsgr., sem hljóðar svo. með leyfi hæstv. forseta: „Engin ályktun er lögmæt, nema meira en helmingur fundarmanna, þeirra sem atkvæðisbærir eru, greiði atkvæði með henni.“

Nú er það svo, að ákvæði alveg sama efnis hefir með breyt. þeirri, sem gerð var á þingsköpunum á þessu þingi, verið fellt niður úr 47. gr., en það er síðari málsl. þeirrar greinar, og hljóðar hann svo, með leyfi hæstv. forseta: „En það er afl atkvæða, ef meiri hluti þingmanna þeirra, sem á fundi eru og atkvæðisbærir, gera annaðhvort að játa eða neita.“

Þetta sýnir, að það hefir vakað fyrir hæstv. forset, Nd., sem gerði úr garði frv. um þingsköpin, að slíkt ákvæði yrði fellt niður úr þingsköpunum, en það er ekki gert með öllu, því ákvæði 44. gr. stendur enn óbreytt, en það er líka nægilegt til þess að slík afgreiðsla máls, sem fór fram í gær, er ólögleg, og sú till., sem þar um ræðir, hefir þannig ekki verið löglega samþ. í þinginu.

Ég vil aðeins vekja athygli hæstv. forseta og hv. þm. á þessu, því þó að það sé að vísu svo, að þingsköp og stjórnarskrá séu í litlum metum, þá tel ég ekki gersamlega vonlaust, að einhver vilji sé fyrir því að fylgja skýrum lagastaf, sem ekki verður um deilt, hvað á að merkja. En að öðrum kosti er þá náttúrlega sjálfsagt, fremur en að brjóta lög, að gera á þingsköpunum fullnægjandi breyt. til þess að hægt sé að fylgja lögunum.