09.05.1936
Sameinað þing: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (2085)
Afgreiðsla þingmála
*Jakob Möller:
Ég ætla nú ekki að tefja fyrir því, að þingið geti lokið störfum í dag. En ég vil þó vekja athyli á því, að ég hafði rétt fyrir mér síðast. Ég gerði mér vonir um, að hæstv. forseti vildi beygja sig fyrir skýrum lagaákvæðum í þessu efni, en hann vill það ekki. Hans málstaður batnar ekkert við það, þó hann fái hæstv. forseta Nd. til þess að taka í sama strenginn. Það er jafnólöglegt fyrir því. Það er skylda forseta að krefja þm. sagna um það, hvers vegna þeir greiði ekki atkv., og þó að þetta hafi ekki verið uppfyllt undanfarið, þá er það þeim ekki til málsbóta. En þegar atkvgr. fer eins og í þessu tilfelli, þá á forseti að endurtaka atkvgr. og krefjast réttar af þeim þm., sem ekki hafa greitt atkv., til þess að úrskurða um það. hvort þeir eru atkvæðisbærir eða ekki.
Ég skal svo láta rökræður um þetta falla niður. Ég geri ráð fyrir, að öllum, og eins báðum þessum hæstv. forsetum, sé það ljóst, að það er rétt, sem ég hefi haldið fram.