02.05.1936
Sameinað þing: 16. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1450 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)

Hlutleysi útvarpsins

*Jónas Guðmundsson:

Mig furðar á þessari framkomu hv. þm. G.-K. út af saklausu erindi, sem ég flutti í útvarpið. Ég vil spyrja hv. þm., hvað það hafi verið í ræðunni, sem hneykslaði hann. Ég man ekki til, að ég hafi t. d. nefnt Sjálfstfl. á nafn. Annars getur hann fengið ræðuna hjá mér, því að ég hafði hvert orð skrifað. Ég sagði ekki annað en það, sem á blöðunum stendur. Ég skal láta honum ræðuna í té, til birtingar, yfirlestrar eða gagnrýni, ef hann óskar þess.