09.05.1936
Sameinað þing: 23. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (2121)

Utanríkismálanefnd

Hannes Jónsson:

Snemma á þessu þingi bar ég fram þá ósk, að Bændafl. fengi þátttöku í nefnd þessari. Flokkar stjórnarinnar voru þá ekki reiðubúnir að svara þessu. Nú er þingið á þrotum og ég vænti þess, að svar þeirra sé reiðubúið.