09.05.1936
Efri deild: 71. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1458 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)
Starfslok deilda
forseti (EÁrna):
Þá er lokið störfum d. á þessu þingi, og nú þegar við erum að skilja og ljúka samstarfinu að þessu sinni, þá finn ég sérstaka ástæðu til að þakka hv. dm. fyrir góða samvinnu á þessu þingi. Mér er þetta sérstök ánægja vegna þess, að samvinna hefir verið með afbrigðum góð í þessari d., og ég vildi óska, að svo yrði lengur, því að þá munu málin ljúkast vel.
Ég vil óska öllum hv. dm., sem leggja af stað heim til sín og heima eiga utan Reykjavíkur, góðrar ferðar og heimkomu, og öllum hv. dm. þakka ég fyrir samveruna og óska þeim í framtíðinni árs og friðar.