21.02.1936
Neðri deild: 5. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í C-deild Alþingistíðinda. (2144)

17. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Flm. (Páll Þorbjörnsson):

Hv. þm. Borgf. kom inn á það að ræða um landhelgina og bann gegn botnvörpuveiðum, og vildi láta líta svo út, að með þessu frv. væri verið að opna landhelgina fyrir veiðiskipum. En ég vil benda á, að þetta er alls ekki rétt. Það er ekki farið fram á slíkt, heldur að rýmkaður verði sá tími, sem Íslendingum — og þá að sjálfsögðu einnig Dönum og Færeyingum — er nú heimilað samkv. 1. að stunda þessar veiðar í landhelgi. Hv. þm. Borgf. klifaði sífellt á því á síðasta þingi, að með þessu frv. væri verið að veita Dönum aukið svigrúm til þessara veiða. En ég verð nú að segja það, að ef það er meiningin að fyrirmuna landsbúum að nytja hér veiðar innan landhelgi einungis af því, að það sé svo mikil hætta á, að Danir og Færeyingar geti flotið þar með, þá fer nú að verða nokkuð langt gengið í því að banna fólkinu að bjarga sér. Það er vitanlegt, að nokkrir bátar frá Danmörku muni stunda hér dragnótaveiðar, en þeir yrðu náttúrlega sárafáir samanborið við hinn mikla fjölda íslenzkra báta, sem taka þátt í þessum veiðum, góðu heilli, þrátt fyrir þá þröngsýni, sem ríkt hefir í þessum efnum í einstökum héruðum. En það vill nú svo til, að það eru önnur skip, langtum fleiri, frá Færeyjum, sem sækja hingað veiðar, einkum handfæraveiðar. Máske hv. þm. Borgf. ætli líka að banna íslenzkum sjómönnum handfæraveiðar til þess að geta útilokað Færeyinga frá þeim?

Þeir bátar, sem Danir senda hingað til dragnótaveiða, eru að vísu ekki stórir. Og þó að veiðitíminn verði lengdur frá því, sem nú er, þá þarf enginn að ætla, að þeir sendi hingað smærri báta til þessara veiða en áður. Bátar þessir hafa verið frá 40–70 smálestir að stærð, flestir, og mér dettur ekki í hug að gera ráð fyrir, að þeir komi hingað á smærri bátum. –Það er líka nokkuð langt gengið, ef þessi ótti við auknar dragnótaveiðar Dana á að mega sín svo mikils, að hann girði algerlega fyrir þá atvinnumöguleika, sem Íslendingar geta haft af þessum veiðum, þó að nokkrir bátar frá Danmörku slæðist með til veiðanna.

Það er eftirtektarvert, að andstaðan gegn þessum dragnótaveiðum er aðallega úr þeim byggðarlögum, þar sem íbúarnir hafa ekki haft framtak í sér til þess að byrja á þeim veiðum. Eg gæti nefnt fjölmörg dæmi því til sönnunar. En svo hafa aðkomumenn oft kennt íbúum þessara héraða að notfæra sér dragnótaveiðarnar, og þá hefir viðhorfið gersamlega snúizt við og þeir snúizt til fylgis við þessa atvinnugrein. Þess er skemmst að minnast frá Önundarfirði, þar sem augu manna voru opnuð fyrir því, hversu fengsæl þessi veiðiaðferð er og auðvelt að nota hana án mikils kostnaðar.