06.03.1936
Neðri deild: 17. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í C-deild Alþingistíðinda. (2173)

60. mál, sauðfjárbaðanir

*Flm. (Pétur Ottesen):

Við flm. þessa frv. ætlum nú að freista þess enn á ný að opna augu hv. þdm. og hæstv. Alþ. fyrir réttmæti þeirrar till. sem felst í þessu frv., svo að hv. þm. fallist á að setja þær tryggingar, sem frekast er hægt að gera til þess að halda fjárkláðanum í skefjum, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., en þó á margfalt kostnaðarminni hátt heldur en þann, sem stofnað var til með löggjöf frá síðasta þingi um svokallaðar útrýmingarbaðanir. Sú löggjöf kemur til með að kosta marga tugi þús., eða jafnvel hundruð þús. kr., enda þótt fyrirfram sé vitað, að með þeirri aðferð, sem þar er ákveðin, sé ekki hægt að ná þeim árangri, að kláðanum verði gersamlega útrýmt. Það fór fram útrýmingarböðun árið sem leið á vissu svæði. Hún var ekki fyrr afstaðin en kláðinn var þar gosinn upp aftur, þannig að það varð að hefja þar baðanir á nýjan leik og vitanlega að halda þar áfram þrifaböðunum eins og annarsstaðar.

Á fjárl. fyrir næsta ár eru áætlaðar 24 þús. kr. í þessu skyni, sem hrekkur þó ekki til fyrir kostnaði við slíkar útrýmingarbaðanir, nema á tiltölulega litlu svæði af landinu.

Væntum við nú flm. þessa frv., að hv. d. og hæstv. Alþingi allt í heild geti fallizt á þessar till. okkar. Og þetta frv. felur í sér allar hinar sömu öryggisráðstafanir um framkvæmd baðananna eins og löggjöfin um hinar svokölluðu útrýmingarbaðanir. — Legg ég svo til, að frv. þessu verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og landbn. Mun ég reyna að sjá um, að málið fái skjóta afgreiðslu í nefndinni.