06.03.1936
Neðri deild: 17. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í C-deild Alþingistíðinda. (2175)

60. mál, sauðfjárbaðanir

*Flm. (Pétur Ottesen):

Það sannast á hv. þm. A.-Húnv., að hægra er að kenna heilræði en halda þau. Því að þegar hann brigzlar okkur flm. frv. um að vilja tefja þingstörf með þessu frv., þá stendur hann hér upp og fer að ræða málið, eftir að ég er búinn að gera till. um að vísa því til n., sem hann á sætt í. Svo mjög varð honum brátt í brók um þetta, að hann gat ekki beðið þangað til n. hafði athugað málið, til þess að þeysa svo hér á mælskufáknum við 2. umr. og láta ljós sitt skína, eftir að hafa fyrst látið það skína í n. En ég mun ekki ræða málið fyrr en það kemur frá n.

Út af því, sem hv. þm. þandi sig yfir því, að hér inn í frv. hafa slæðzt 2 villur, annaðhvort í prentun eða handriti — ég veit ekki hvort heldur —, og önnur villan er, að vitnað er skakkt í l., vil ég segja það við hv. þm., að honum ferst ekki að tala digurt í þessu efni. Því að á síðasta þingi rétti hann upp höndina til þess að samþ. frv. til 1., þar sem vitnað var vitlaust í l. Hann hefði þá átt að gæta betur sóma sinnar stéttar, fyrst hann er nú svona viðkvæmur fyrir því, að slæðzt hafa tvær villur inn í þetta frv. Ég vildi bara aðeins benda á þetta, að þegar menn fara að gerast umvöndunarsamir dómarar út af svona smávægilegum atvikum, þá ferst þeim það bezt, sem sjálfir eru svo algildir og óskeikulir, að ekkert slíkt getur hent þá.