13.03.1936
Neðri deild: 23. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (2186)
60. mál, sauðfjárbaðanir
*Gísli Guðmundsson:
Ég býst við, að frekari umr. fari að verða óþarfar. Ég vænti þess, að hv. þdm. fari að verða sæmilega ljóst, hvílík reginvitleysa er í áliti meiri hl. landbn. Sýnir það ekkert betur en ræða hv. 2. þm. N.-M., sem áttar sig alls ekki á því, hvers vegna lögin eru lögð fram, né skilur, að óþarft muni að baða eftir tvennum lögum á sama árinu. En ég vil benda honum á það, að við flm. gerðum ráð fyrir, að útrýmingarböðunin yrði svo rækileg, að ekki þyrfti almennt þrifabað sama ár og ætlumst því til, að framkvæmd böðunar samkv. l. um þrifabaðanir yrði frestað það ár, er útrýmingarböðun fer fram. — Annars er það táknrænt fyrir alger rökþrot þessara manna, þegar hv. þm. A.-Húnv. fer að reyna að nota sér prentvillur, sem nú þegar hafa veri leiðréttar, en slæddust inn í upphafi. Þetta sýnir aðeins, hve málstaður meiri hl. landbn. er veikur, að gripið skuli til slíkra vopna af sjálfum hernum.
Þá skal ég benda á annað atriði en frsm. meiri hl. taldi ekki nýtt, heldur í gildandi lögum; það er ákvæðið í 6. gr. frv. um skipun baðstjóra. En í gildandi l. er ekkert ákvæði um þetta, heldur aðeins, að hreppsnefndir skuli sjá um, að þrifabaðanir fari fram í hreppnum. Þar er ekkert ákvæði um, að sérstakur maður skuli vera skipaður til að sjá um framkvæmdirnar, eins og hér er farið fram á og beinlínis ætlazt til, að verði. Við vitum, að framkvæmdir þessara laga eru ekki undir eftirliti og eru í megnasta ólagi, og vafalaust í mestu ólagi þar, sem kláðinn er mestur.
Ég skal ekki hafa fleiri orð hér um, en vænti, að hv. meiri hl. landbn. láti hlutlaust, að málið nái fram að ganga, þó að þeir e. t. v. greiði ekki atkv. með frv., þar sem þeir hafa tekið þessa afstöðu í landbn.