20.03.1936
Neðri deild: 29. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (2194)
60. mál, sauðfjárbaðanir
Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):
Það var hreint ekkert lítið uppi í hv. síðasta ræðumanni að því er snerti andmæli gegn þessari brtt. Hann vildi láta það líta svo út, sem við flm. hennar gerðum okkur hlægilega með því, að við ætluðum okkur að greiða atkv. gegn frv., þó að brtt. þessi yrði samþ. En ég verð nú að segja það, að þó að við, sem stöndum gegn þessu frv., höfum ekki vald á því hér í hv. d. að stöðva afgreiðslu þess, þá teljum við það skyldu í þessu máli sem hverju öðru að reyna að koma málinu í þá mynd, sem frekast er viðunandi. Sé ég ekkert hlægilegt við það, hvað sem hv. þm. Borgf. og hans nótar kunna um það að segja.
Annars skal ég, út frá því, sem hér hefir verið rætt, fara nokkru nánar út í þá aðferð, sem hv. flm. hafa viðhaft í sambandi við það frv., sem fyrir liggur. Fyrst bera þeir fram málið í fyrra sem brtt. við frv. um útrýmingu fjárkláða. Þá bera þeir málið fram aftur í haust og mæla þá fyrir því á þá leið, að það eigi að koma í veg fyrir, að það sé reynt að útrýma fjárkláðanum í landinu og það eigi að spara þær 24 þús. kr., sem ætlaðar eru í fjárl. þessa árs til útrýmingar kláðanum. Nú flytja þeir þetta mál enn á ný, og að síðustu koma þeir inn á það, að halda því fram, að það eigi nú að nota þessi l., þegar búið sé að framkvæma hin, um útrýmingu fjárkláðans. Þeir fara sem sagt úr einni vitleysunni í aðra. Til dæmis um rökvísi hv. 1. flm. frv. vil ég minna á það, sem hv. 2. þm. N.-M. sagði við 2. umr. þessa máls, að hv. 1. flm. telur það sönnun fyrir því, að ekki sé hægt að útrýma þessari sýki úr landinu, að það tókst ekki árið 1903. En þá voru ekki til mörg þau tæki, sem nú eru til til böðunar á fé. Nú lýsir hv. 1. flm. frv. því yfir á Alþ., að ómögulegt sé að baða svo viðunandi sé, nema með því að hafa sundþrær á hverju sveitaheimili.
Í stuttu máli sagt hefir það verið svo, að í þessu máli hefir höfuðvörnin verið þekkingarleysi og flónska hv. 1. flm., sem þar hafa haldizt í hendur og lagt saman nytjar. Þeir hv. þdm., sem ekki hafa fylgzt með, hvað hér hefir verið rætt um, en vilja taka þessar afurðir hv. 1. flm. frv. sem góða og gilda vöru, þeir eiga að vera sjálfum sér samkvæmir og láta gjöldin, sem af ákvæðum frv. stafa, lenda á þeim stað, þar sem þau eiga að lenda, á þeim aðilja, sem Alþingi hefir rétt til að láta þau lenda á, nefnilega ríkissjóði.