30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2213)
60. mál, sauðfjárbaðanir
*Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég get verið fáorður nú, því ég talaði fyrir till. síðast þegar málið var til umr. Mér skilst, að ef menn vilja hafa eftirlit og telja það nauðsynlegt, þá sé ástæða til þess, að einhver hafi heimild til að láta fara fram skoðun. Það er vitanlegt, að víða eru til þeir trassar, að kláði getur komið upp hjá þeim, án þess að þeir viti, að féð er sjúkt. Þess vegna fer allt í ólagi, ef enginn hefir heimild til þess að láta fara fram skoðun. Það var sá galli á útrýmingarl., að tilskipunin frá 1866 var afnumin. Til þess að bæta úr þessu er till. fram komin. Ég segi fyrir mig sem sýslumann og lögreglustjóra, sem hefir við kláða að stríða, að ég kem ekki að hálfu gagni, ef ég hefi ekkert vald til að láta athuga hann.