29.04.1936
Neðri deild: 59. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í C-deild Alþingistíðinda. (2247)
51. mál, fiskimálanefnd o. fl.
Thor Thors:
Vegna þess að ég er nokkuð kunnugur því málefni, sem hefir verið dregið inn í umr., vil ég ekki láta hjá líða að gera nokkrar aths. við það, sem fram hefir komið. — Ég ætla að fara eftir mannvirðingum og snúa mér fyrst að hæstv. atvmrh. Hann er að vísu ekki hér í d., en ég vona, að einhver sé hér viðstaddur, sem geti skrifað niður það, sem hæstv. ráðh. vildi svara í minni ræðu.
Hann byrjaði með því að spyrja um það, hvort það væri með ráðnum hug eða það hefði verið tilviljun, að útvegsmenn hefðu valið hv. 6. þm. Reykv. til þess að hafa forystu í þessu máli. — Það er fullkomlega með ráðnum hug, sem útvegsmenn og sjálfstæðismenn þessarar hv. d. hafa valið hv. 6. þm. Reykv. til þess að eiga sæti í sjútvn. deildarinnar, og sem nefndarmaður þeirrar n. hefir hann tekið hér til máls, og ég ætla, að bæði útvegsmenn og aðrir hv. sjálfstæðismenn þessarar hv. d. beri fullt traust til hv. 6. þm. Reykv. í þessum sökum, og þeir vita að hann hefir mjög staðgóða þekkingu á þeim málum. Hæstv. atvmrh. brosir. En hann gerir bara sjálfan sig hlægilegan með því. Hann þykist hafa mikið vit á útvegsmálum og virðist byggja það á því, að hann hefir verið búsettur á Ísafirði um langt skeið, eins og hv. 6. þm. Reykv. En hv. 6. þm. Reykv. hefir verið í stjórn togaraútgerðarfélags og haft því tækifæri til þess að kynnast þeim málum rækilega, og hann hefir einnig átt sæti í milliþinganefnd, sem hafði það starf með höndum að rannsaka hag og afkomu allra sjávarútvegsmanna í landinu og málefni sjávarútvegsins í heild. Þessi n. innti starf sitt mjög vel af hendi og skilaði rökstuddu áliti til Alþingis. Hlýtur hún því að hafa fengið mjög staðgóða þekkingu á hag og afkomu sjávarútvegsins í landinu. Af þessum ástæðum hefir hv. 6. þm. Reykv. mjög mikla þekkingu á þessum málum, enda sýnir það sig, þegar hann deilir við hæstv. stjórn um þá hluti.
Hæstv. atvmrh. kom nú með gamlan lofsöng um afrek fiskimálanefndar. Hann byrjaði á því að geta þess, að hún hefði úthlutað leyfum fyrir útflutningi á fiski. Það er vart meira verkefni en hjá S. Í. F., sem hafði þetta starf með höndum að því er snertir 90% af útflutningnum. — Hæstv. atvmrh. talaði einnig mikið um herðingu á fiski, þetta stóra bjargráð fyrir sjávarútveginn, sem mér hefir skilizt á stjórnarblöðunum, að ætti að vera. En hvað hefir fiskimálanefnd gert? Ég held, að það hafi verið hert 200 tonn af fiski og flutt út síðastl. ár. En það er vert að geta þess sem dæmi um víðsýni fiskimálanefndar, að hún þurfti endilega að senda verulegan hluta af þessu til Ítalíu og láta andvirðið frjósa þar inni.
Þá var hæstv. ráðh. mjög kampakátur, þegar hann minntist á kampalampann. Ég hefi nú því miður haft þær fregnir, að vafasamur hagnaður mundi verða af kampalampaveiðum, vegna þess hve erfitt er að fá markað fyrir hann.
Þetta var það helzta, sem hæstv. ráðh. gat um, að fiskimálanefnd hefði afrekað, að undanteknum hraðfrysta fiskinum, sem ég skal minnast á síðar. En það vill alltaf gleymast að telja fram það, sem fiskimálanefnd hefir kostað í sínu starfi. Það er ekki svo að skilja, að hv. form. fiskimálanefndar, hv. 2. þm. Reykv., leggi sjálfur þetta fram til almenningsþarfa. Nei, hann hefir til ráðstöfunar mikið fé úr ríkissjóði, sem ýmist hefir fengizt með lántökum eða er tekið af útvegsmönnum í landinu. Og það er hvorki meira né minna fé, sem n. er búin að eyða, en 445 þús. og 500 kr. N. hefir fengið 418500 kr. frá ríkissjóði, frá markaðs- og verðjöfnunarsjóði 2700 kr., eða samtals 445500 kr. Hvernig hefir hún svo varið þessu fé ? Það má segja, að því hafi verið varið á ýmsan hátt. T. d. er einn liðurinn upp á kr. 44721,86 og er beinn kostnaður við Póllandssöluna, sem svo mikið var gumað af á sínum tíma og Alþýðublaðið birti skrautmynd af hv. 2. þm. Reykv. í tilefni af. Svo er fyrir hraðfrystan fisk, svokallaðan Esphólínsfisk, kr. 53492,88. Ég veit ekki, hvað hefir komið á móti þessum lið. Ég býst við, að verðmætin hafi alls ekki verið tilsvarandi. Svo er ferðakostnaður og kaup Eiríks Sigurbergssonar kr. 7663.94. En mér er ekki kunnugt um nokkurn minnsta árangur af hans för, nema eina niðgrein um Mussolíni, sem kom í Alþýðublaðinu. Hann komst þó aldrei til Ítalíu. Þá er fyrir kvikmynd kr. 10514.46, fyrir kvikmyndavél kr. 3043.60 og ferðakostnaður einhvers ljósmyndara kr. 2197.30. — Ég sé ekki. hvað þetta kemur fiskinum við. Það er að sjálfsögðu þarflegt verk að sýna kvikmyndir héðan af Íslandi, en það er ekki ástæða til þess að sjávarútvegsmenn landsins standi eingöngu undir því. Það verður að vona, að þessi myndatökumaður, sem búinn er að fá yfir 2 þús. kr., sé orðinn svo fær í sinni list, að hann geti tekið verulega góða mynd af hv. 2. þm. Reykv., sem verður birt í Alþýðublaðinu næst þegar fiskur verður sendur til Póllands.
Í Ameríkufiskinn fóru kr. 115154,84, en þar kemur verðmæti á móti, en alls ekki öll sú upphæð. Verður nú stórkostlegt tap á þessari sendingu fyrir hreinustu handvömm fiskimálan.
Svo er beinn rekstrar- og nefndarkostnaður færður á þetta eina ár kr. 54868.25. — Þessu gleyma þeir. Þeir telja þetta ekki fram, þegar þeir eru að hæla fiskimálanefnd fyrir sín miklu afrek, sem voru þó ekki fyrirferðarmeiri en þau, sem hæstv. ráðh. taldi upp.
Ég skal þá minnast á hraðfrysta fiskinn, en þá kemst ég ekki hjá því að minnast á, hvert er samkv. lögum verkefni fiskimálanefndar. Það kemur fram í 2. gr. laga um fiskimálanefnd, sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Fiskimálanefnd hefir með höndum úthlutun verkunarleyfa, ef þau verða fyrirskipuð. Hún skal gera ráðstafanir til þess, að gerðar séu tilraunir með nýjar veiðiaðferðir og útflutning á fiski með öðrum verkunaraðferðum en nú eru mest tíðkaðar. Hún skal hafa forgöngu um markaðsleit og tilraunir til að selja fisk á nýju markaði og annað það, er lýtur að viðgangi sjávarútvegsins. Getur ríkisstj. veitt nefndinni fé úr markaðs- og verðjöfnunarsjóði í þessu skyni með samþykki sjóðsstjórnarinnar.“
Hér stendur, að fiskimálan. eigi að gera ráðstafanir til þess, að gerðar séu tilraunir með útflutning á fiski með nýjum verkunaraðferðum. Það er svo sem ekki ætlun löggjafans, að fiskimálanefnd geri þetta sjálf, heldur á hún að hlutast til um, að tilraunir séu gerðar. Nú var það svo með þann hraðfrysta fisk til N.-Ameríku, sem S. Í. F. hafði með að gera, að hann líkaði vel. Þegar hann kom út, símar umboðsmaður S. Í. F. í New-York á þá leið, að hann sé ánægður með fiskinn; hann sé góður og í heilbrigðu ástandi. Það eina, sem sé að, sé, að pappírinn sé ekki nógu góður. Segist hann þegar geta selt 25 tonn, ef S. Í. F. samþ. það.
Eftir að þetta var orðið upplýst í málinu leitaði S. Í. F. samvinnu við fiskimálanefnd um sendingu á einum farmi. Hv. 2. þm. Reykv. bar fram till. um það, að þessarar samvinnu væri leitað, og ég verð að segja honum það til lofs, að hann var í fyrstu fús til samvinnu og sá, að það var hið eina rétta í málinu. En síðan, þegar stjórnmálin tóku hug hans heljartökum, þá snerist hann í málinu og neitaði algerlega, að S. Í. F. hefði nokkur afskipti af þessu. Það varð því úr, að stjórnmálin, sem illu heilli komust inn í málið, sigruðu og hv. 2. þm. Reykv. fékk vilja sinn fram í þessu máli, eins og svo oft nú á tímum. Hinn 18. febr. fékk svo S. Í. F. skeyti frá umboðsmanni sínum í New-York, þar sem hann segist vera búinn að selja 50 smálestir til þessa firma, sem hann nefnir, sem hefir 35 þús. útsölustaði víðsvegar um Bandaríkin, og hann biður um að mega selja meira, þar sem þessi sami kaupandi hafi í hyggju að kaupa meira. Og hann biður S. Í. F. að gera svo vel að ætla sér allt, sem unnt er, handa þessum þýðingarmikla kaupanda vegna framtíðarviðskipta. Hér staðhæfi ég, að hafi verið möguleikar fyrir hendi að selja allan þennan umrædda farm fyrirfram fyrir verð, sem hefði gefið um 20 þús. kr. hagnað. En það er þó sannað, að fyrir ofurkapp og ofmetnað fiskimálanefndar undir forystu hv. 2. þm. Reykv. var komið í veg fyrir þetta, og afleiðingin varð því sú, að farmurinn var ekki seldur með 20 þús. kr. hagnaði, heldur með tapi, sem vafalaust má reikna 30 til 40 þús. kr., þegar öll kurl koma til grafar.
Ég verð því af þessum ástæðum að staðhæfa í fyrsta lagi, að fiskimálan. hafi misskilið hlutverk sitt, í öðru lagi, að hæstv. atvmrh. hafi haldið verndarhendi yfir þeim misskilningi, og í þriðja lagi, að fyrir þessa óheillaákvörðun, að hafna samvinnu við S. Í. F., hafi útgerðarmenn beðið tjón, sem nemur mörgum tugum þús. króna.
Hæstv. atvmrh. sagði, að Sölusambandið skorti vit, reynslu og þekkingu á við fiskimálan. Má alltaf deila um slíkt, því að mannvit og reynsla verða ekki vegin. En út af mannavali því, sem hann taldi vera í fiskimálan. og tefldi fram gegn liðléttingunum í stj. Sölusamb., vil ég minna á, að ofurmennið Héðinn Valdimarsson á sæti í báðum n., og eins Helgi Guðmundsson bankastjóri. Að ólöstuðum Júlíusi Guðmundssyni staðhafi ég, að Magnús Sigurðsson bankastjóri muni hafa vit og reynslu á við hann, og að Jón Árnason geti jafnazt á við Pálma Loftsson. Að því er Jón Axel Pétursson hafnsögumann snertir, fullyrði ég, að Jóhann Jósefsson hafi eins mikla þekkingu á sjávarútvegsmálum og hann. Þannig held ég, að hægt sé að sýna fram á, að meiri þekking sé saman komin í stj. Sölusambandsins en í fiskimálan. Og þó að fiskimálan. hafi nú fengið ungan starfsmann sem skrifstofustjóra, staðhæfi ég, að skrifstofustjóri Sölusambandsins, sem öll sín manndómsár hefir starfað að þeim málum, sem hún fæst við, komist til jafns við hann pilt. En þá eru ónefndir allir þrír framkvæmdastjórar S. Í. F., sem allir hljóta, sakir langrar reynslu, að teljast helztu sérfræðingar okkar á sviði fisksölumálanna. Ég þykist því hafa sýnt, að þetta fleipur er ekki frambærilegt hér í þingsölunum. Það sýnir bezt rökþrot þau, sem hæstv. atvmrh., jafnorðslyngur og greindur maður, er kominn í, að hann telur það til hindrunar því, að Sölusamb. geti farið með verkefni sín, að það verði að gera upp á milli félagsmanna. Hann ætti að geta sagt sér það sjálfur, að það er ekki meiri vandkvæðum bundið fyrir Sölusambandið að jafna milli viðskiptamanna sinna en fyrir fiskimálan., þar sem Sölusambandið þekkir þá alla, en n. ekki.
Annars fannst mér hæstv. ráðh. tala nú í öðrum tón og valdsmannslegri en á aukafundi S. Í. F. Hann vildi bera brigður á, að samþykkt þess fundar sýndi hug útvegsmanna á landinu. Ég vil bendir hæstv. ráðh. á, að á þeim fundi voru saman komnir menn víðsvegar að af landinu, menn, sem höfðu umboð fyrir langsamlega mestan hluta af fiskmagni því, sem til er á landinu. Mig minnir, að þar hafi verið fulltrúar fyrir fiskeigendur, sem ráða yfir 330 þús. skippundum af fiski, en allt fiskmagn félagsins mun nema um 386 þús. skippundum. Á það hefir verið bent, til þess að reyna að gera þennan fund ómerkari, að ýmsir menn utan af landi, sem ekki gátu sótt fundinn, fólu framkvæmdarstjórum eða starfsmönnum Sölusambandsins að fara með umboð fyrir sig. Ég tel það einmitt vott um sérstakt traust, að þessum mönnum voru falin umboðin. en ekki mönnum eins og t. d. hv. 2. þm. Reykv. Þarna voru einnig fjölmargir útvegsmenn frá Keflavík, Akureyri, Stokkseyri, Eyrarbakka og af Norðurlandi, fulltrúi fyrir Vestmannaeyjar, sem jafnframt er þm. þeirra og formaður sölusambandsins þar. Þarna var fulltrúi fyrir Sölusamlag Vestfjarða og fulltrúi frá S. Í. S., sem hafði umboð frá nærri öllum kaupfélögum landsins. Er það því fjarstæða að efa, að bak við þessa samþykkt hafi staðið vilji útvegsmanna yfirleitt.
Hæstv. ráðh. sagði, að sér þætti miður, ef breyt. yrði á um forustu þessara mála. Ég er ekki viss um, að hæstv. ráðh. tali hér af einlægni eða að honum þætti leitt, ef fiskimálan. félli niður og S. Í. F. tæki við. En fyrst svona mikið hefir verið talað um að sameina S. Í. F. og fiskimálan., verð ég að minnast nokkuð á viðskipti þessara stofnana út af saltfisksölunni til Norður-Ameríku. S. Í. F. mátti lengi vel ekki koma nærri sölunni til Norður-Ameríku, þó að það hefði fastan umboðsmann þar, af því að fiskimálan. þurfti að bola þessu undir sig. Á meðan samlaginu var haldið í fjötrum af hæstv. atvmrh., fóru umboðsmenn fiskimálan. um allt til að selja og urðu til að veikja traust það, sem samlaginu hafði tekizt að afla. S. Í. F. var stofnun, sem réð yfir 90% af fiskmagni landsmanna. Fiskimálan. sendir nú mann til Norður-Ameríku og lætur hann segja, að S. Í. F. sé stofnun, sem ekkert mark sé á takandi, en fiskimálan. ráði öllu um þessi mál. Hv. 2. þm. Reykv. sækir þetta svo fast, að hann hlutast til um, að atvmrh. svari ekki í heilar þrjár vikur málaleitun S. Í. F. um að mega bjóða út til sölu saltfiskinn. Svo þegar umboðsmaður fiskimálan. hefir sýnt, að hann getur ekkert selt, þá er S. Í. F. enn leiðin lokuð, til þess að fiskimálan. geti látið danskan umboðssala selja 700 tonn af saltfiski. Maður, sem ekki er löglegur útflytjandi, má selja gegnum umboðsmann í Danmörku og umboðsmann í Bandaríkjunum til aðilja, sem S. Í. F. hefir haft bein viðskipti við. Það er þetta, sem þykir varða almanna hag, eins og þetta pólitíska hornsíli hér var að tala um, hv. þm. Ísaf. — Ef hæstv. forseti óskar, get ég frestað framhaldi ræðu minnar. Frh.