28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í C-deild Alþingistíðinda. (2272)
128. mál, alþýðutryggingar
*Stefán Jóh. Stefánsson:
Ég vil aðeins leyfa mér að benda á, að eftir ellistyrktarsjóðslögunum átti enginn maður rétt til ellistyrks, heldur var það eftir mati sveitar- eða bæjarstjórnar. hvort menn, sem höfðu náð þessum aldri, skyldu fá styrk, og þá hversu mikinn. Á sama hátt er eftir alþýðutryggingarl. sveitar- og bæjarstjórn heimilt að veita hverjum manni, sem hefir misst starfsorku sína, m. a. fyrir aldurs sakir, örorkulífeyri. Þó að nafnið sé annað, þá skiptir það engu máli; aðalatriðið er að fá styrkinn. Með brtt. hv. þm. Snæf. er engin bót ráðin á því, að gamalmenni fái skilyrðislausan rétt til að njóta styrks, þó að þau hafi náð þessum aldri, heldur aðeins rétt til að mega sækja um styrkinn, en svo fer eftir mati sveitar- eða bæjarstjórnar, hvort þau fái styrkinn, en það fer aftur eftir persónulegum hag og ástæðum umsækjanda. Ég álít því, að munurinn verði í reyndinni örlítill þó að þessi brtt. verði samþ., þar sem bæjar- og sveitarstjórnum stendur opið að veita gamla fólkinu aðstoð undir öðru nafni, ef það hefir misst eitthvað af starfsorku sinni fyrir elli sakir.