21.02.1936
Neðri deild: 5. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (2313)
14. mál, samvinnufélög
*Gísli Guðmundsson:
Ég skil ekki í þessum hávaða, sem þessi hv. þm. er hér með út af því, að till. hefir komið um, að frv. hans verði sá sómi sýndur að vísa því til n. Ég hélt, að hv. þm. hefði fremur ástæðu til að gleðjast yfir því, að frv. hans er veitt sú athygli, að menn vilja, að það fái afgreiðslu í n. Ég vil ekki heldur efast em, að allshn. athugi málið, og býst við, að hún liggi ekki á liði sínu.
Ég á ekki að svara fyrir þá n., en ég hygg, að til hennar komi fleiri mál en flestra annara n. og að hún afgr. þau yfirleitt greiðlega, svo að það er alls ekki örvænt, að hún afgr. þetta frv., ef hún fær það til meðferðar.