24.02.1936
Neðri deild: 7. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í C-deild Alþingistíðinda. (2355)

25. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

*Flm. (Emil Jónsson):

Þetta frv. lá fyrir þessari hv. d. á síðasta þingi, en var ekki útrætt. Þá heyrðist ekkert um málið frá þeirri n., sem málinu var vísað til. Veit ég ekki, hvað til þess hefir komið. Ég tel þetta mál svo mikilsvert, að ég vil leyfa mér að vænta þess, að öðruvísi verði á því tekið en á síðasta þingi, og að reynt verði að afgreiða það sem fyrst og á sem heppilegastan hátt.

Legg ég til, að málinu verði vísað til 2. umr. og sjútvn., með ósk um, að sú hv. n. geri því fljót og góð skil. Tel ég að n. geti ekki afgr. það á annan hátt en þann, að mæla með framgangi málsins í einhverri mynd, og að hún geti með engu móti staðið á móti því. — Annars vísa ég til grg., sem fylgdi frv. þessu í fyrra, og umr., sem þá fóru fram um málið.