27.02.1936
Neðri deild: 10. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2369)
39. mál, kaup á Bíldudalseign
Jón Ólafsson:
Ég sé ekki ástæðu til að hafa mörg orð um málið á þessu stigi, þar sem það á eftir að fara í n. Ég verð þó að minna á það, að þegar slík vandræðaerindi koma fyrir Alþingi, verður að taka þeim með vinsemd og skilningi. Ég hefi heyrt á ýmsum hv. þm., að þeir vilji ekki ganga inn á þessa braut, sem þeir hafa þó í rauninni þegar farið inn á, sbr. kreppulánin til bænda. Hér gegnir líka nokkuð öðru máli, því að hér er ekki verið að biðja um fé beint til að éta, eins og segja má um dýrtíðarvinnu og þess háttur. Hér er farið fram á stuðning við hérað þetta, svo að fólk geti lifað þar. Menn gera sér yfirleitt ekki grein fyrir því, hvers vegna svona er komið fyrir þessum happasæla firði, sem verið hefir einu hinn bezti á landinu að því er snertir síldveiðar og fiskveiðar. Afli hefir brugðizt þarna nú um nokkur ár, svo að einsdæmi er. Þetta hefir orðið til þess, að þeir, sem haft hafa forystu um atvinnurekstur á staðnum, hafa, farið lengra og lengra niður á við.
Mér skildist á hv. þm. V.-Húnv., að hann vildi kenna bönkunum um þau mistök, sem virðast hafa orðið um atvinnurekstur þessu héraðs. Ég vil ekki fara langt út í það mál, en vil aðeins minna hann á, að sjálfar hefir hann átt við fyrirtæki í Húnavatnssýslu, sem reyndist þess ómegnugt að ráða fram úr sínum málum. Á vandræðatímum hlýtur það að vera ofvaxið bönkunum sem komnir eru í þrot vegna hrakfara borgaranna, að rétta við svona héruð án stuðnings frá því opinbera. Ég vil geta þess að Alþingi hefir, svo sem kunnugt er, rétt ýmsum þorpum hjálparhönd. Nú hefir t. d. Alþingi hjálpað Eyrarbakka og Stokkseyri. Er því ekki nema sjálfsagt, að litið sé á svona mál með velvild, hvaðan sem þau koma. Og þegar um hefir verið að ræða ýmiskonar hjálp til bændastéttarinnar, sem ég sé ekki eftir, þá hefir ekki borið á neinum kala til þeirra mála. Þegar t. d. verið var að samþ. að kaupa kotið Skálholt fyrir 30 þús. kr., þá var ekki verið að horfa í bjargráðin. Svona má margt telja, sem ríkissjóður hefir gert með samþykki Alþingis. Og fyrst búið er að rétta mönnum víðsvegar á landinu hjálparhönd, þá er ekki nema sjálfsagt að leggja líka öðrum lið, sem til Alþ. leita í nauðum sínum.
Ég ætla ekki að svara þeim ásökunum, sem hv. þm. V.-Húnv. beindi til Útvegsbankans, því að ég tel mér ekki skylt að svara þeim. En það má allt segja eftir á og einnig það, að bankinn hefði átt að hafa opin augun fyrir því, sem var að gerast. Já, það má slá slíku fram, en allir vita nú, að nærfellt engri stofnun eða einstaklingi hefir verið sú framsýni gefin að geta séð fyrir þá örðugu tíma, sem nú standa yfir. En hafi sú framsýni leynzt með þjóðinni norður á Hvammstanga, þá er það illa farið, að hún skyldi ekki koma fram fyrr en nú.