27.02.1936
Neðri deild: 10. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í C-deild Alþingistíðinda. (2373)
39. mál, kaup á Bíldudalseign
Páll Þorbjörnsson:
Ég mun vera manna kunnugastur hv. þm. staðháttum í Bíldudal. Að vísu er það svo, að ég hefi ekki fylgzt þar eins vel með á síðustu árum og áður, en þó nægilega til þess, að ég tel mig geta dæmt um það, hvort ástæða sé til að hlaupa undir bagga með þessum mönnum, og það fremur á þessum stað en öðrum hér á landi.
Fyrir eina tíð var það svo um þetta þorp, að í sjávarútvegsmálum mátti segja, að það hefði forgöngu á meðal útgerðarstaða hér á landi. Það mun hafa verið einhver fyrsti staðurinn, þar sem reist var hafskipubryggja, íshús og fiskþurrkunarhús, og þar var um eitt skeið einhver mesta þilskipaútgerð landsins. Þá var vegur þessa staður svo mikill, að mikið af þeim fiski, sem fluttur var út frá Íslandi, var kenndur við þetta litla þorp. Það er alkunnugt, að það var ekki aðeins fiskur þaðan, heldur og frá mörgum öðrum stöðum, sem gekk undir nafninu „Bíldudalsklipfisk“. Síðan hefir gengið á ýmsu fyrir þessu byggðarlagi. Alltaf hefir það verið svo, að einhver einstaklingur eða einstakt félag hefir haft eignarheimild á staðnum. Hefir farið ýmislega fyrir þessum félögum; þau hafa orðið að leggjast niður og nýir einstaklingar eða ný félög hafa tekið við. En allt fram á þennan dag hefir það a. m. k. verið svo, að Bílddælingar hafa sjálfir sem einstaklingar gert sitt til þess að missa ekki atvinnutækin burtu úr þorpinu, og þar með möguleikana til þess að bjarga sér. Þegar t. d. milljónafélagið varð gjaldþrota og hætti starfsemi sinni, höfðu Bílddælingar ekki vissu fyrir, hvort eignirnar yrðu seldar í einu lagi eða skipin sitt í hverja áttina. Höfðu þeir þá svo mikinn áhuga á, að þetta bútaðist ekki í sundur, að þeir mynduðu félag til þess að kaupa skipin, svo þau yrðu ekki flutt burtu. Fór svo, að tiltölulega lítið af skipakostinum fór burtu úr þorpinu, og svo var eignin sjálf keypt af félagi, sem að mestu leyti var eign manna, búsettra á staðnum. En þegar fram liðu stundir, gengu skipin úr sér og það fór að verða úrelt að fiska með handfæri. Þá var farið að brjótast í að fá meira „moderne“ tæki, mótorbáta og línuveiðara. En gegnum þetta alltsaman var staðurinn sjálfur og mannvirkin þarna í eigu einstaklinga og félaga, sem af ýmsum orsökum gátu ekki haldið þeim svo við sem nauðsynlegt var, ef atvinnulífið átti að haldast í viðunandi horfi. Nú er svo komið, að það má svo heita, að ekkert íshús sé til á staðnum; það gamla er orðið ónýtt, svo ekki er lengur hægt að skaffa fiskimönnunum ís til að frysta við beitu. Bryggjan er og að falla niður og óviðunandi fyrir útgerðina. Atvinnuhættir hafa breytzt það frá því, sem áður var, að þó e. t. v. hafi verið hægt á þeim tíma, þegar handfærið var eingöngu notað, að dragast áfram án þess að hafa íshús, þá er nú, þegar veiðiskapurinn er að færast í það horf, að eingöngu er fiskað með línu, útilokað að stunda veiðar þarna án þess að hafa íshús til þess að frysta beitu. Ég er nokkurnveginn viss um, að orsökin til þess, hvað erfiðlega gengur fyrir línuveiðabátunum og hversu litlar atvinnubætur þeir hafa getað fært þorpsbúum, samanborið við það, sem þeir hefðu annars getað, er að miklu leyti sú, að þeir hafa orðið að vera viðbundnir á öðrum stöðum til þess að fá brýnustu nauðsynjar til útgerðarinnar. Nú er það svo, eins og komið hefir fram í ræðum þeirra, sem á undan mér hafa talað, að það mun vera útilokað, að núv. eigandi eignarinnar eða hreppsfélagið geti stuðningslaust reist við þau mannvirki, sem þarna þurfa að vera til þess að hægt sé að halda atvinnurekstri áfram og lífi í fólkinu. Þess vegna mun þetta frv. vera komið fram frá hv. þm. Barð., um að ríkið hlaupi undir bagga. Það hefir verið tekið fram áður, að það er vitanlega ekki nóg, að staðurinn sé keyptur eða tekinn eignarnámi; það þarf einnig að gera umbætur á bryggju, íshúsi og öðrum byggingum, sem nauðsynlegar eru útgerðinni. Ég er ekki í vafa um það, þrátt fyrir undangengin aflaleysisár, að þessi staður hefir atvinnuskilyrði fram yfir marga aðra staði hér á landi, sem nú hafa við erfiðleika að stríða. En svo bezt verða þessir möguleikar hagnýttir, að í landi sé aðstaða til að taka á móti aflanum. Með hverju árinu, sem líður, verður erfiðara að stunda útgerð með það fyrir augum að salta aflann eingöngu. Allt hnígur meira og meira í þá áttina að flytja fiskinn út frystan eða ísaðan, en eins og hagur þarna til nú, eru engir möguleikar á því. Arnarfjörður hefir um langt skeið verið sá staður, sem bæði botnvörpungar og dragnótabátar sækja einna mest inn á, enda er öllum kunnugt, sem til þekkja, að mikið er af flatfiski á firðinum. Væri sæmilegt íshús til á staðnum, er ég ekki í vafa um, að Arnfirðingar myndu fara inn á þá braut, að fá sér sjálfir veiðarfæri til þess að stunda dragnótaveiði þarna; gæti það orðið drjúgur þáttur í því að hjálpa þeim til að lifa.
Það hefir verið tekið hér fram áður af þeim, sem talað hafa, að hér er í rauninni um nokkuð annað að ræða heldur en á mörgum öðrum stöðum kringum land, sem komizt hafa í vandræði. Á Bíldudal stafa vandræðin ekki fyrst og fremst af aflatregðu og þvíumlíku, heldur stafa þau fyrst og fremst af því, að atvinnutækin, hvort sem er á sjó eða landi, eru orðin svo úr sér gengin, að það er ekki lengur hægt að hagnýta þau, og það eru ekki líkur til þess, að íbúarnir geti án stuðnings kippt því í lag.
Ég sé ekki ástæðu til að koma neitt inn á það, sem fram hefir komið hér frá þeim tveimur hv. þm., sem mest hafa mælt á móti því, að þessu byggðarlagi væri rétt hjálparhönd. Ég vil vænta þess, að eftir að hv. þm. hafa kynt sér aðstöðuna og ástandið þarna, ef þeir hafa ekki gert það þegar, þá hafi þeir skilning á því, að það er betra að hefjast þegar handa og rétta þetta við heldur en bíða þess tíma, að það fari e. t. v. svo fyrir Bílddælingum, og jafnvel Arnfirðingum yfir höfuð, að þeir þurfi að leita til ríkisins á sama hátt og hefir því miður komið fyrir eitt bæjarfélag, biðja um framfærslueyri vegna þess að ekki dugi að rétta hjálparhönd að því er snertir atvinnumöguleika.