28.02.1936
Neðri deild: 11. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2382)

39. mál, kaup á Bíldudalseign

*Hannes Jónsson:

Mér kom það dálítið undarlega fyrir, að hv. 9. landsk. skyldi tala í þeim dúr, að hann þyrfti ekki að kippa sér upp við það, þó hann fengi einhver ónot í sambandi við afgreiðslu þessa máls, því það var einmitt þessi hv. þm., sem hagaði sér svo hér í gær, að hann ræddi ekki málið, heldur jós úr reiðiskálum sínum upphrúguðum skammaryrðum og ókvæðisorðum. Hann hefði frekar átt að biðja afsökunar á þessu framferði sínu og segja, að menn mættu ekki kippa sér upp við það, þó hann félli við og við inn í sitt eðli hér á Alþingi.

En ég verð að segja það, að hér virðist það ekki nein goðgá, þó að í meðferð málsins í n. sé það athugað, eins og hæstv. fjmrh. minntist á, hvort ekki sé til önnur leið, sem geti verið jafnhagkvæm til lausnar á þessu máli eins og sú, að ríkissjóður gerist kaupandi. Það er ekkert aðalatriði, að ríkissjóður sé kaupandinn, en það er aðalatriðið, að ríkissjóður geti lyft undir lífvænlegan atvinnurekstur á þessum stað og reist við þorpið og afkomumöguleika þess á þeim grundvelli.

Hv. 9. landsk. komst kynduglega að orði um nauðsyn þessa máls. Hann sagði eitthvað á þá leið, að þetta væri svo aðkallandi, að hjá því yrði ekki skellt skolleyrunum. Svona löguð málvenja þekkist ekki í mínu byggðarlagi. En það getur skeð, að hann hafi komizt upp á það lagið að dingla skolleyrunum, að hann þykist þurfa að koma því að í því sambandi, sem það þekkist ekki annarsstaðar. Sennilega hefir hv. þm. meint, að ekki yrði hjá því komizt að leiða málið til lykta á þeim grundvelli, sem gæti leitt af sér lífvænlegan atvinnurekstur á þessum stað.

Þar sem hv. 9. landsk. er nú farinn og ég verð að líta svo á, að hann hafi í raun og veru verið að biðja afsökunar á framferði sínu í gær, þá ætla ég ekki heldur að hafa þessi orð fleiri og get látið þann ágreining, sem okkar var á milli í gær, falla niður í dag.