20.02.1936
Neðri deild: 4. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (239)

4. mál, verðtollur og bráðabirgðaverðtollur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég þarf ekki að hafa langa framsögu fyrir þessu frv.; það fer fram á, að öll gildandi ákvæði um verðtoll og bráðabirgðaverðtoll verði látin gilda fyrir árið 1937, og nægir að vísa til fjárlfrv. til þess að sýna fram á nauðsynina á því að haga þessu svo. Að umr. lokinni óska ég frv. vísað til fjhn.