28.02.1936
Neðri deild: 11. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2394)

44. mál, kosningar til Alþingis

*Flm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Þetta frv. er nokkuð skýrt í grg. þess. Með því er farið fram á að leiðréttu agnúa á 24. gr. kosningalaganna sem í ljós kom við síðustu kosningar til Alþingis og leiddi til þess, að ekki var hægt að koma fram leiðréttingu á kjörskrá í einum hreppi, þó öllum væri ljóst, að á kjörskránni stóðu nöfn manna, sem ekki höfðu kosningarrétt. Það er áreiðanlegt, að við setningu kosningalaganna hefir Alþingi sézt yfir þennan galla á 24. gr., að eftir henni er mönnum ekki unnt að kæra til dómstólunna yfir kjörskrá, nema þeir hafi áður kært til hreppsnefndar. En í því tilfelli, sem ég minntist á, gat kærandi ekki kært til hreppsnefndar, vegna þess að nöfnum þeirra manna, sem kært var yfir, var af hreppsnefndinni bætt inn á kjörskrána eftir að kærufrestur var útrunninn. Málið hefir verið dæmt bæði í undirrétti og hæstarétti, og hafa dómar fallið þannig, að kjörskránni væri ekki hægt að breyta, af þeim ástæðum, sem ég hefi tekið fram, og er þó öllum vitanlegt, að nöfn þeirra manna stóðu á kjörskránni, sem ekki höfðu kosningarrétt.

Ég sé ekki ástæðu til að tala nánar fyrir þessu frv., en vænti þess, að hv. þdm. verði mér sammála um það, að frv. feli í sér sjálfsagða leiðréttingu. Óska ég, að málinu verði vísað til hv. allshn. að þessari umr. lokinni.