15.04.1936
Neðri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (2405)

44. mál, kosningar til Alþingis

*Hannes Jónsson:

Það eru sjálfsagt öllum þingheimi í fersku minni umr. um þetta mál og sú afgreiðsla, sem það fékk á sínum tíma. Höfuðandstaðan, sem sú skipun á þessum málum fékk, er sósíalistar og stuðningsmenn vildu helzt koma á, var frá þeim mönnum, sem vildu tryggja áhrifavaldið frá kjördæmum landsins frekar heldur en áhrifavald miðstjórna flokkanna. Þarna börðust tvö öfl; annarsvegar til þess að styrkja vald miðstjórnanna og hinsvegar til þess að draga völdin úr höndum miðstjórnanna yfir til kjósendanna sjálfra, til kjördæmanna. Það má segja, að í þessu efni háðu baráttu sömu öflin eins og háðu baráttu um það yfirleitt, hvernig kosningu þm. skyldi háttað í landinu. Vitanlega var uppi önnur stefna í málinu heldur en ofan á varð nefnilega sú, að leggja niður kjördæmin eins og þau eru nú og kjósa alla þm. í einu hlutfallskosningu. Móti þessu hafa barizt þeir menn, sem telja, að með þessu færist stjórnmálavaldið úr höndum landsmanna sjálfra og yfir í fárra manna hendur, til miðstjórna flokkanna. Það sigraði sú stefna, að halda gamla kjördæmaskipulaginu, og það sigraði einnig sú stefna í þessu efni, að taka vald kjördæmanna fram yfir vald miðstjórnanna. Ég skal að vísu játa, að í meðferð þingsins varð þetta mál fyrir miklum breyt., sem sumar voru síður en svo til bóta. Það, sem við, er börðumst sérstaklega fyrir því að halda uppi valdi hinna dreifðu byggða, héldum fram að væri réttlátasta skipunin á þessu, var, að þeir menn kæmust í uppbótarsætin, sem næst því hefðu komizt að ná þingkosningu í kjördæmi. Nú hafa sumir hneykslazt á því, að þetta skuli þurfa að vera þannig, að menn verði að hafa fallið í einhverju kjördæmi til þess að geta komizt að sem uppbótarþingmenn. En þetta er í sjálfu sér ekkert undarlegt, því að kjörnir þm. í kjördæmunum eru vissulega þm. fyrir sitt kjördæmi og geta því ekki komið til greina sem uppbótarþingmenn. En hinir, sem hafa verið í kjöri og sýnt, að þeir hafa mikla tiltrú í sínum kjördæmum, hafa það fram yfir þá aðra, sem hvergi hafa reynt kjörfylgi sitt og jafnvel er ekki vitað, að nokkur maður úti um land mundi vilja styðja við kosningu, að þeir fá möguleika til þingsætis, og það því meiri, sem fylgi þeirra er hlutfallslega meira.

Frá þessari stefnu, sem við héldum fram, var vikið á þann hátt, að sameinaðar voru þrjár aðferðin. Fyrstur í röðinni af þeim, sem til greina koma við úthlutun uppbótarsætanna, átti sá að vera, sem hafði fengið flest atkv. í kjördæmi, án tillits til hlutfallsins milli atkv.tölu hans og kjósendatölu kjördæmisins. Þá sá, sem hlutfallslega mest fylgi hafði fengið. En sem nr. þrjú átti að koma maður eftir vali miðstjórnar viðkomandi flokks, þar sem miðstjórnunum var leyft að leggja fram raðaðan lista, sem sýndi, hverja þær vildu helzt í uppbótarsætin, og átti 3. hver uppbótarþm. hvers flokks að koma inn eftir þeim lista. Ég skal játa, að þetta veldur nokkrum ruglingi, og æskilegast hefði verið að láta það sjónarmið eitt ráða, að þeir komi inn í uppbótarsætin, sem hlutfallslega mest fylgi hafa fengið án þess að ná kosningu í kjördæmi. En þrátt fyrir það hefði ekki orðið svo ýkjamikil breyt. á skipun þingsins frá því, sem er, þó þessi aðferð hefði verið viðhöfð. Það hefði skipt um tvo menn í uppbótarsætum Sjálfstfl.; þeir Torfi Hjartarson og Lárus Jóhannesson hefðu komið í stað Guðrúnar Lárusdóttur og Garðars Þorsteinssonar, Alþfl. hefði haft sömu menn sem aðalmenn, en 1. varamaður þeirra hefði ekki orðið varamaður, sem eðlilegt er, þar sem hann hafði ekki nema um 2% atkvæðanna í sínu kjördæmi. Sýnir það, að hann komst samt inn sem 1. varamaður, hvað óeðlilegt það er, að miðstjórnarvaldið ráði svo miklu um það, hverjir hljóta uppbótarsætin. Hjá Bændafl. hefði orðið lítilsháttar breyting;

Jón í Stóradal hefði komið inn í stað Magnúsar Torfasonar og varamenn hefðu þeir orðið Tryggvi heitinn Þórhallsson og Lárus í Klaustri. (Rödd: Kallar hv. þm. það lítilsháttar breytingu?). Lítilsháttar þannig, að ekki hefðu orðið skipti nema á einum af þm. flokksins, en ég verð að segja, að það hefði verið nokkuð eðlilegra, að sá maður hefði komið inn, sem hlutfallsleg, meira fylgi hafði fengið fyrir sinn flokk í kjördæmi sínu. Á þeim grundvelli eru reist þau rök, sem undir þá skoðun falla, að það ætti að ráða úrslitum hvað nálægt menn komast því að ná kosningu þar, sem þeir eru í framboði.

Nú veit ég ekki, hvernig á að skoða orð hæstv. forseta, þegar hann segir, að ef breyt. verði ekki gerð á þessari skipun nú, þá muni verða örðugra að gera hana síðar; að það verði örðugra að breyta þessu í það horf að leggja valdið yfir uppbótarsætunum í hendur miðstjórnanna, eins og brtt. gera ráð fyrir, eftir því sem núv. skipun helzt lengur. Það hlýtur þá að vera fyrir það, að menn fái sannanir fyrir því, að ekki sé heppilegt að fá miðstjórnunum slíkt vald í hendur. Ég er sammála hæstv. forseta um það, að það muni verða því verra sem lengra líður að koma þessu í það horf, sem sósíalistar ætluðust upphaflega til, að það kæmist í. Ég vil því vænta, að hann verði sjálfum sér samkvæmur í þessu efni og leggi ekki mjög hart að þinginu að gera þá breyt., sem hann býst við, að hljóti að hafa því minna fylgi sem lengra líður. Mér sýnist, að ekki sé fengin svo mikil reynsla af ákvæðum kosningalaganna um þetta atriði, að af þeirri sök einni sé rétt að breyta til frá því, sem nú er, þó ég hinsvegar hefði kosið, að þau hefðu verið nokkuð með öðru móti. Eins og menn vita, var þessi skipun nokkurskonar samkomulagsgrundvöllur milli þeirra aðilja, sem um kosningalögin deildu; samkomulag, sem ég skal að vísu játa, að fékk nokkur andmæli frá fyrrv. formanni Sjálfstfl., en ég hygg, að það hafi verið byggt á því, að hann hafi talið, að með því væri brotið eitthvert samkomulag, sem hann hafði gert við sósíalista, þó ég hinsvegar hafi ekki fengið neina sönnun fyrir því, að þetta hafi á nokkurn hátt komið í bága við þá samninga, sem farið höfðu fram um lausn þessa máls. Ef svo kæmi til mála að breyta þessum 1. eftir að nánari reynsla er fengin, er það skýlaus skoðun mín, að það eigi að breyta þeim þannig, að fella niður þessa tvíþættu aðferð við útreikning uppbótarsætanna og nota aðeins þá einu réttlátu leið, að þeir frambjóðendur, sem næst því komast að ná kosningu í sínu kjördæmi, fái uppbótarsætin.

Ég skal játa það, að ég hefi ekki miklu tilhneigingu til að halda uppi löngum umr. um þetta mál, frekar en hæstv. forseti. Ég býst við, að mönnum sé málið vel ljóst, og þó eitthvað hafi komið fram vegna þeirrar skipunar, sem kosningalögin ákveða nú á úthlutun uppbótarsætanna, sem bæði ég og aðrir hefðu óskað, að ekki hefði átt sér stað, þá býst ég ekki við, að menn séu yfirleitt áfjáðir í að breyta til. Það hefði verið gott, ef við hefðum getað sneitt hjá þeim agnúum, sem fram hafa komið, en ég er sannfærður um, að þeir agnúar reynast mjög léttvægir samanborið við þá stórkostlegu agnúa, sem koma mundu fram við það að gefa miðstjórnunum það vald í hendur, sem till. hæstv. forseta gera ráð fyrir. Það væri því að flýja úr öskunni í eldinn að hverfa frá þeirri skipun, sem nú gildir, og til þess skipulags, sem með brtt. er lagt til, að tekið verði upp. Af tvennu illu vill maður heldur taka það, sem skárra er, þó maður hinsvegar geti ekki lokað augunum fyrir þeim ágöllum, sem fram hafa komið og við mátti búast, og ekki eru meiri heldur en þeir ágallar, sem telja má alveg víst, að komi fram við það skipulag, sem brtt. gera ráð fyrir.