15.04.1936
Neðri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (2407)

44. mál, kosningar til Alþingis

*Jörundur Brynjólfsson:

Það eru aðeins örfá orð. Mér skildist á hv. þm. V.-Húnv., að hann telja, að samkv. þessum till. mundu miðstjórnirnar öðlast meira vald yfir landslistunum. Ég hygg, að svo verði ekki í reyndinni. Þær hafa mikil áhrif á, hverjir eru í kjöri úti um byggðir landsins. Og samkv. þessari brtt., sem hér er lögð til, á viss tala af frambjóðendum úr kjördæmum utan Reykjavíkur að vera á landslista, eins og ég veit, að hv. þm. hefir tekið eftir. Það segir í a-lið síðustu málsgr.: „Á landslista hvers flokks skal a. m. k. annaðhvert sæti tíu efstu manna listans skipað frambjóðendum flokksins í kjördæmum utan Reykjavíkur.“ Svo að það á að vera tryggt, að þekking á högum manna og háttum í sveit sé til staðar, þegar raðað er á landslista. Ég held þess vegna, að þessi mótbára hafi ekki við mikil rök að styðjast.

Hv. þm. virtist mér skiljast, að brtt. hefði ekki annað í sér fólgið en það, sem kynni að rýra vald héraðanna um framboð. Þetta er á mesta misskilningi byggt. A. m. k. þar, sem menn hafa nokkur afskipti af, hverjir verða í kjöri í héruðunum, stendur eftir sem áður opin leið að ráða því. Samkv. þessu ákvæði er annaðhvert sæti af 10 efstu sætum listans skipuð frambjóðendum í kjördæmum utan Reykjavíkur. Hann vildi telja þetta aðallega í þágu sósíalista. Er ég ekki viss um, að þeir skilji það eins, því að ég hygg, að þeir séu mjög á báðum áttum. Enda er það vissulega ekki af þessari ástæðu, sem hv. þm. V.-Húnv. er að tala um þetta, heldur allt annari, sem ég kem að síðar. Það getur nú vel verið, að hv. þm. V.-Húnv. virðist sem mætti telja mönnum trú um, að ég vildi hlynna að stefnu jafnaðarmanna í þessu, en ég hygg honum veiti erfitt að fá menn til að trúa, að það hafi vakað fyrir Jóni Þorlákssyni fyrst og fremst að stuðla að viðgangi þeirra stefnu, og var honum þetta afarmikið alvörumál. Ég hygg, að honum hafi gengið allt annað til en fram hefir komið enn í þessum umr. hjá okkur báðum, sem ég skal víkja að áður en ég lýk máli mínu. (HannJ: Samningar?). Það var drengilegt, eins og hans var von og vísa, að vilja halda samninga, sem gerðir hafa verið.

Ég skal þá víkja örfáum orðum að því, sem hv. þm. Snæf. sagði. Honum fannst óviðfelldið, að ég kom fram með þessa brtt. við 3. umr. málsins. Ég get gjarnan viðurkennt, að ef ég hefði verið við því búinn, hefði ég komið með brttvið 2. umr. Ég þori ekki að staðhæfa, hvað till. er búin að liggja lengi frammi, en ég hygg þó þriggja vikna tíma a. m. k., en bækur þingsins segja til um það. Hafa menn því haft afargóðan tíma til að athuga brtt. En breyt. er aðeins um þetta eina atriði og því einföld, þó að hún sé þýðingarmikil. Og ég get ómögulega á það fallizt, að það sé ekki á þinglegan hátt gert að bera brtt. fram, því að vitaskuld koma oft víðtækar brtt. við mál við 2. og 3. umr., ekki sízt í fyrri deild. En einnig í seinni deild hafa meira að segja oft komið fram allmiklar breyt. að vísu get ég viðurkennt, að það getur staðið þannig á, að óviðkunnanlegt er að koma með slíkar breyt. við síðustu umr. í síðari deild. — Ég skil vel, eftir því sem fram hefir komið hjá honum, að hann gefur ekki svo mikið um þessa breyt., ef hann hefir mjög ríkt í huga að breyta stjórnarskránni og taka nú upp þá stefnu, sem barizt var um eitt sinn, að gera kjördæmin fá og stór og viðhafa hlutfallskosningu. En ég veit ekki, hvernig kann að vera ástatt nú um þá stefnu; ég vil vona, að hún hafi ekki byr hér á þingi frekar en fyrr.

Mér virtist hv. þm. Snæf. telja, að það væri erfiðara fyrir flokkana að gera þessa röskun nú, sem breyt. hefði í för með sér, heldur en ef þessi aðferð hefði strax verið viðhöfð. Og ég get búizt við því, að þannig kunni að vera ástatt í þeim flokkum, sem hafa uppbótarmenn. En það var einmitt það, sem ég átti við, þegar ég sagði, að því erfiðara væri, sem lengur líður. Því að ef breyt. er erfið vegna uppbótarþm., sem komu við síðustu kosningar, þá er ég sannfærður um, að því óhægra verður um vik síðar meir. Nú sem stendur tel ég heldur einfalt fyrir flokkana að komast yfir þennan þröskuld. En ég er ekki sannfærður um, að það verði auðvelt síðar meir, þegar enn víðtækari áhrif, gætir máske út frá þessu kosningafyrirkomulagi. Ég held það sé einmitt hyggilegast fyrir þá flokka, sem eiga uppbótarsæti í þingi og hafa von um þau framvegis, að styðja að því, að breyt. verði gerð strax. Og það mun hafa vakað fyrir Jóni Þorlákssyni, að hann sá með sinni framsýni, að þetta kosningafyrirkomulag var afaróheppilegt. Og ég hygg, að þingið og flutningur mála og framkoma dragi einmitt nokkurn dám af þessu fyrirkomulagi, og getur orðið því lakara ástand og meir niðurlægjandi fyrir þingið sem lengra líður. Og það er vitaskuld höfuðatriðið. Mér finnst það kosningafyrirkomulag ekki mega vera ráðandi, sem gerir þingið að ófullkomnari stofnun en það annars þyrfti að vera. En mér er alls ekki grunlaust, að svo kunni að fara, ekki sízt þegar frá líður. En mér finnst mega vel gera þessa breyt. á kosningal., hvað sem stjskr. líður. Vitaskuld er hverjum þm. heimilt að gera till. um breyt. á stjskr. En mér finnst ekki vert að setja neitt samband á milli þessarar breyt. og stjskr.breyt, — nema því aðeins, að menn geri ráð fyrir, að stjskr.breyt. verði það róttæk, að kosningal. í höfuðatriðum hljóti að gerbreytast.

Ég fjölyrði svo ekki frekar um þessa till., svo einföld að formi sem hún er.