15.04.1936
Neðri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í C-deild Alþingistíðinda. (2408)

44. mál, kosningar til Alþingis

*Hannes Jónsson:

Hv. 1. þm. Árn. vill gera lítið úr þeim auknu áhrifum, sem þessar breyt. hafa fyrir miðstjórnir flokkanna. Hann sagði, að miðstjórnir mundu hafa, nokkur áhrif á, hverjir séu í kjöri fyrir flokkana í einstökum kjördæmum, og að a. m. k. annaðhvert sæti af 10 fyrstu sætum verði skipað af frambjóðendum í kjördæmum. Ég skal fyrst taka það, að þessi áhrif miðstjórna á frambjóðendur í héruðum geta aldrei orðið verulega hættuleg, fyrir þá sök, að enginn flokkur mundi leyfa sér að hafa áhrif á frambjóðanda í kjördæmi, sem fast er studdur af héraðsmönnum og hefir eindregið fylgi. Þess vegna er líklegt, að þessi maður sé minna háður valdi miðstj. heldur en ef eingöngu er í hennar valdi, hvort hann er í framboði eða ekki.

Og svo er hitt ákveðið, að það skuli vera a. m. k. annarhver af 10 fyrstu mönnum af frambjóðendum flokksins í kjördæmum utan Reykjavíkur. Það má vitanlega komast mjög framhjá þessu ákvæði, með því að stilla upp á lista þeim frambjóðanda flokks, sem mestar líkur eru til, að kosningu næði í kjördæminu. Þá þurrkast þeir út, frambjóðendurnir, sem möguleika hafa fyrir uppbótarsætum, en hinir koma inn, sem hvergi hafa verið í kjöri. M. ö. o., það er hægt, þó að þetta ákvæði sé sett, að útiloka, að það geti haft nokkur veruleg áhrif.

Hv. þm. heldur fram, að ef breyt. á þessu verði ekki gerð nú þegar, þá muni það örðugt reynast síðar, aðallega að mér skildist vegna andstöðu landskjörinna þm. sjálfra, sem þeir gætu skapað innan sinna flokka. Hann lét orð falla í þá átt, að það yrði því meiri niðurlæging fyrir þingið sem lengur drægist að breyta þessu, vegna þess að þeir starfshættir kæmust á í þinginu — að mér skildist fyrir tilverknað og framkomu og aðstöðu þessara manna. Ég veit nú ekkert, hvort þessi orð hv. frsm. eiga að skiljast sem allsherjar eldhúsdagur og árás á hinu landskjörnu þingmenn. Þeirra er að svara fyrir sig. En ég veit satt að segja ekki, á hvaða rökum slík ákæra á að vera reist. Má vel vera, að þeir í einu eða öðru hafi reynt að láta þau héruð njóta þess kjörfylgis, sem þeir hafa aflað sér í héruði því, sem þeir voru kosnir í. En ég verð nú að segja, að mér finnst þá skörin færast upp í bekkinn, ef þm. fara að telja einhvern sérstakan ókost á þm., að þeir vilja gæta hagsmuna hinna dreifðu byggða í landinu.

Ég skal ekki orðlengja þetta mikið. Ég skil ekki í raun og veru, hvað hv. frsm. á við í ásökunum sínum, sem hann beinir til hinna landsk. þm., og veit ekki til þess, að þær séu á rökum reistar. Ekki skil ég heldur þá ástæðu, sem hann heldur fram, að örðugra verði að breyta til síðar og þess vegna nauðsyn að gera það nú. Ef breyt. þættu horfa til hins betra, þá myndu flokkar og einstakir þm. fúsir til að fallast á þessar breyt., og þeim mun fúsari sem fleiri agnúar koma fram vegna þessa ríkjandi skipulags. En ætli breyt. hefði ekki orðið örðugri, ef miðstjórnirnar hefðu fengið ósk sína í upphafi uppfyllta, þannig að þær hefðu ráðið, hverjir hefðu skipað uppbótarsæti flokkanna? Ætli flokksstjórnirnar hefðu ekki haft nokkuð mikil tök á þessum mönnum til þess að standa með sér um það að láta þessa skipun haldast? Ég get ekki fundið neina eðlilega ástæðu fyrir því, að þá hefði verið léttara að breyta kosningalögunum, jafnvel þó að það hefði komið berlega í ljós, að sú skipun hefði verið til hinnar mestu óhamingju fyrir störf þingsins. Því að miðstjórnir miður vandar að meðulum mundu ekki hika við að halda í það vald, sem þær einu sinni hafa getað hrifsað til sín.

Það eina, sem getur þarna valdið ágreiningi og á vitanlega að ráða úrslitum í þessu máli, er það, hvort heppilegra sé, að áhrifavaldið komi utan úr sveitum landsins eða hvíli hjá miðstjórnum flokkanna, sem allt vilja „hugsa í flokkum“. Þeir, sem nokkurs meta ákvörðunarrétt einstaklingsins, munu að sjálfsögðu vilja halda í rétt kjördæmanna til þess að ráða úrslitum um það, hverjir skipa uppbótarsæti flokkanna.

Að endingu þetta: Ég á mjög örðugt með að trúa, að landsk. þm., sem eiga nú sæti á Alþingi, muni senda kjósendum sínum þær kveðjur heim, eftir að hafa notið þess stuðnings, sem hefir fleytt þeim inn á þing, að hrifsa af þeim það vald, sem kosningal. hafa fengið þeim í hendur.