15.04.1936
Neðri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í C-deild Alþingistíðinda. (2409)

44. mál, kosningar til Alþingis

*Jörundur Brynjólfsson:

Ég er búinn að nota minn ræðutíma, enda þarf ég ekki miklu að svara hv. þm. V.-Húnv. Ég ætla, að það verði ekki lengra komizt í að telja þessa uppbótarþm. eign flokkanna heldur en kom fram á þingi, þegar rætt var um þingsæti Magnúsar Torfasonar, og mest af hálfu flokks hv. þm. V.-Húnv. Hver breyting getur þá orðið frekar í þessu efni? Það er þá sama, hvert fyrirkomulagið er; lengra verður ekki komizt. Nú dettur þeim sama flokki ekki í hug að taka undir, að slíkt nái nokkurri átt, hvort sem því fyrirkomulagi er haldið, sem um gildir, eða það tekið upp, sem ég tala um. En af því að ég hefi ekki rétt til að halda ræðu, minni ég hv. þm. á það, hv. réttur sveitanna var mikils metinn af þessum hv. þm. og flokknum í vetur.