15.04.1936
Neðri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í C-deild Alþingistíðinda. (2411)
44. mál, kosningar til Alþingis
Thor Thors:
Það er aðeins örfá orð. Flm. brtt. er nú dauður og því ekki rétt að deila mikið við hann. Að vísu er rétt, sem hann sagði, að algengt er að bera fram stórar brtt. við 2. og 3. umr. máls. Enda þótt þetta hafi nokkuð tíðkazt, verð ég að telja það ekki með öllu þinglegt, og komi það m. a. fram í þessu máli, þar sem hér við 3. umr. eru tekin helztu deilumálin frá því að kosningal. voru sett. Ég get ekki verið hv. þm. sammála um það, að vitað sé, að erfiðara verði síðar fyrir flokka að breyta frá því skipulagi, sem nú er. Því að ég get einmitt ímyndað mér, að þetta mál leysist af sjálfu sér, þegar næsta spor verður stigið í þessu máli, að breyta kosningafyrirkomulaginu og kjördæmaskipun í það horf, sem stefnt var að af þeim mönnum, sem vildu, að þingið yrði ætíð sem réttust mynd af þjóðarviljanum. Og ég veit ekki, hvaðan hv. flm. kemur umboð til að segja, að sú stefna að ná meira réttlæti í þessu máli eigi ekki fylgi á Alþingi. Það hefir ekki ennþá sýnt sig að Alþfl. hafi svikið þann málstað, sem hann áður hefir fyllt í þessu máli; og ég hygg, að Sjálfstfl. sé fús til þess að koma fram skynsamlegri breyt. á þessu sviði til meira réttlætis. En þótt enn hafi ekki komið í ljós, hver er stefnu einstakra flokksmanna í þessu máli, þá vænti ég, að þess verði nú ekki lengra að bíða en til næsta þings, að það komi skýrt fram. Ég vil leggja áherzlu á þau orð hv. 1. þm. Árn., að ekki mætti gilda það kosningafyrirkomulag, sem gerði þingið að ómerkilegri stofnun en ástæða er til. Ég veit ekkert, sem er eins vel til þess fallið að gera þingið að ómerkilegri stofnun og rýra virðingu þess með þjóðinni eins og það, ef Alþingi er ekki rétt mynd af þjóðarviljanum.