08.04.1936
Neðri deild: 47. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (2455)

52. mál, skipun prestakalla

*Frsm. minni hl. (Guðbrandur Ísberg):

Ég ætla aðeins að segja nokkur orð út af þessum mótmælaskjölum, sem fram hafa komið frá 6000 manns gegn þessari prestafækkun, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., sem hér liggur fyrir. Hv. 1. þm. Árn. sagði, að þessi mótmæli væru fram komin á þann veg, að prestarnir hefðu ferðazt bæ frá bæ og fengið menn með lygum og blekkingum til þess að skrifa undir. Ég skipti mér ekkert af þessum ummælum þá, en orð hv. 2. þm. N.-M. fengu mig til þess að minnast á þetta, því að ummæli hans hnigu í svipaða átt og orð hv. 1. þm. Árn., þó að hundavaðshátturinn væri enn meir áberandi hjá hv. 2. þm. N.-M. Hann upplýsti það, að hann hefði fengið bréf frá einhverjum manni síðastl. ár, sem bað hann um að stuðla að því, að hann gæti fengið prestssetursjörðina á leigu, og þessi sami maður gat þess, að á þessum slóðum hefði ekki verið prestur um skeið og að enginn óskaði eftir að fá prest þangað. Nú hafa komið fram mótmæli úr þessari sókn gegn því, að prestssetrið verði lagt niður. Hv. þm. benti á það því til sönnunar, hvað lítið væri að marka þessi mótmæli, að nú kæmu fram andmæli frá þessari sókn gegn því, sem hún óskaði eftir í fyrra. Hv. þm. líkir því saman, að í fyrra óskaði einn maður eftir því, að ekki kæmi prestur á prestssetrið, svo að hann gæti fengið jörðina leigða, og nú koma fram andmæli frá meginhluta sóknarmanna gegn því, að presturinn verði tekinn úr þessari sókn. Ég hygg, að slík rök dæmi sig sjálf. — Vil ég svo enn skora á menn að ganga ekki lengra í prestafækkuninni heldur en gert er ráð fyrir í till. minni hl. launamn.